Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Lovísa Arnardóttir skrifar 15. nóvember 2025 08:02 Trump bregst við hærra vöruverði með því að undanskilja ákveðnar vörur eða vöruflokka frá tollum. Vísir/EPA Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur undirritað tilskipun um að ýmsar matvörur, þar á meðal kaffi, bananar og nautakjöt, verði undanskildar víðtækum tollum hans.
Tilskipunin var tilkynnt á sama tíma og verðlag hefur hækkað í Bandaríkjunum, eins og annars staðar. Í frétt BBC segir að þó svo að Trump hafi gert lítið úr áhyggjum af framfærslukostnaði hafi hann lagt áherslu á þetta eftir slakt gengi Repúblikanaflokksins í kosningunum í síðustu viku. Ýmsar vörur eru á undanþágulista Hvíta hússins, allt frá avókadóum og tómötum til kókoshneta og mangóa. Þessar vörur, að sögn Trump-stjórnarinnar á föstudag, er ekki hægt að framleiða í nægilegu magni innanlands. Trump hefur ávallt haldið því fram að tollar hans muni ekki hafa þau áhrif að vöruverð muni hækka. Tollarnir séu nauðsynlegir til að draga úr viðskiptahalla Bandaríkjanna. Hærra verð á innfluttum vörum eigi að hvetja fólk til að kaupa bandarískar vörur í staðinn. Á sama tíma hefur kostnaður matvöru og sérstaklega himinhátt verð á nautakjöti orðið að pólitísku máli fyrir Trump. Í síðustu viku kallaði hann eftir rannsókn á kjötvinnsluiðnaðinum og sakaði fyrirtæki um „ólöglegt samráð, verðsamráð og verðstýringu“. Í samtali við fréttamenn á föstudag sagði Trump að ákvörðun um að undanskilja ákveðnar vörur frá tollunum myndi hafa áhrif á vörur sem eru ekki framleiddar í Bandaríkjunum og að hann eigi ekki von á því að fleiru við tollana verði breytt. „Ég held að það verði ekki nauðsynlegt,“ sagði Trump við blaðamenn. „Við drógum aðeins til baka tolla á sumum matvælum, eins og kaffi til dæmis, þar sem verð á kaffi var svolítið hátt. Nú verður það í lægri kantinum innan skamms,“ sagði Trump. Tollaundanþágurnar taka gildi afturvirkt á miðnætti síðasta fimmtudags, 13. nóvember. Hvíta húsið birti lista yfir meira en 100 vörur sem ekki eru lengur háðar gjöldunum. Það eru til dæmis kaffi, kakó, svart te, grænt te, vanillustangir, ýmsar nautakjötsafurðir, fjöldi ávaxta og ýmislegt krydd og hnetur.
Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Matvælaframleiðsla Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira