Tugir látnir eftir árás á íbúðarhúsnæði Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. nóvember 2025 19:48 Rússar hæfðu íbúðarhúsnæði. Epa Að minnsta kosti 25 eru látnir, þar á meðal þrjú börn, eftir að rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarhúsnæði í vesturhluta Úkraínu. Rúmlega sjötíu særðust í árásinni.
Árásin átti sér stað í borginni Ternopil sem er um tvö hundruð kílómetra frá landamærum Póllands við Úkraínu. Rússar hafa ekki gert fjölda árása á borgina hingað til og á myndskeiðum sem BBC hefur undir höndum má sjá flugskeytin nálgast borgina án viðbragða frá loftvarnarkerfi Úkraínumanna. Þá hæfðu Rússar einnig borgina Lviv og Ivano-Frankivsk-umdæmið. Að sögn forsvarsmanns lofthers Úkraínu gerðu Rússar 476 drónaárásir og skutu 48 flugskeytum. Úkraínski herinn náði að stöðva 442 dróna og 41 loftskeyti. Lítið rafmagn er í boði í borginni Lviv og víðar í Úkraínu.EPA Vólódimír Selenskí, forseti Úkraínu, birti myndir af eyðileggingunni á samfélagsmiðlinum X og lýsir ástandinu. „Því miður urðu íbúar Ternopil verst úti í þessari stórfelldu árás Rússa í nótt. Eins og staðan er núna vitum við að þessi árás Rússa hefur kostað 25 mannslíf, þar af þrjú börn. Enn og aftur hafa Rússar drepið saklaust, friðsamt fólk sem var einfaldlega sofandi á heimilum sínum,“ skrifar forsetinn. Orkuinnviðir og almenningssamgöngur í grennd við borgina urðu fyrir skemmdum vegna árásarinnar. Rússar leggja nú áherslu á að eyðileggja orkuinnviði landsins þegar veturinn nálgast. Með því hafi þeir áhrif á bæði líðan íbúa og varnir Úkraínu. Vegna þessa skammta úkraínsk yfirvöld rafmagn.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira