Dáður en umdeildur kylfingur látinn Sindri Sverrisson skrifar 28. nóvember 2025 14:03 Fuzzy Zoeller kunni tökin á golfkylfunum og vann tvö risamót á sínum ferli. Getty/Logan Riely Bandaríski kylfingurinn Fuzzy Zoeller, sem tvívegis fagnaði sigri á risamóti í golfi, er látinn, 74 ára að aldri. Rasísk ummæli hans varðandi Tiger Woods vörpuðu skugga á glæstan feril.
Zoeller var mikill húmoristi og afar vinsæll kylfingur á sínum tíma. Hann er sá síðasti sem afrekaði það að vinna Masters-mótið í fyrstu tilraun, þegar hann vann eftir þriggja manna bráðabana árið 1979. Hann vann svo aftur risamót árið 1984 þegar hann hafði betur í bráðabana við Greg Norman á US Open. Þeir Norman höfðu glímt um sigurinn og hélt Zoeller að hann hefði tapað þegar Norman setti niður pútt á lokaholunni, og lyfti hvíta handklæðinu sínu eins og til að sýna að hann hefði gefist upp. En Norman hafði slegið einu höggi meira en Zoeller hélt og því kom á endanum til bráðabana. Kveðja frá Trump „Mjög leitt að heyra um hinn afar virta og elskaða atvinnukylfing, Fuzzyi Zoeller, sem nú er látinn,“ skrifaði Donald Trump, Bandaríkjaforseti og golfunnandi, á Truth Social og rifjaði upp söguna um hvíta handklæðið. Eins og fyrr segir urðu rasísk ummæli Zoeller í garð Tiger Woods, á Masters-mótinu 1997, honum hins vegar til skammar og leiddu einnig til fjárhagslegs tjóns þar sem hann missti auglýsingasamninga í kjölfarið. Ummælin sem skemmdu orðstírinn Woods var þá að spila lokahringinn á leið sinni að tólf högga sigri en hefð er fyrir því að sigurvegari Masters velji svo matseðilinn fyrir hátíðarkvöldverð sem haldinn er tveimur dögum fyrir mót næsta árs. Zoeller sagði við fjölmiðla: „Þið vitið hvað þið gerið þegar hann kemur hingað. Þið klappið honum á bakið og segið til hamingju og njóttu, og segið honum að bjóða ekki upp á steiktan kjúkling á næsta ár. Náðuð þið því?“ Zoeller var svo að labba í burtu þegar hann sneri sér við og bætti við: „Eða blaðkál [e. collard greens] eða hvað í fjandanum það er sem þeir bjóða upp á.“ Meira en viku síðar sendi Woods frá sér yfirlýsingu og sagði ljóst að „engin persónuleg óvild í hans garð hefði verið ætlunin“. Skaðinn reyndist hins vegar skeður og orðstír Zoeller beið mikinn hnekki.
Golf Andlát Mest lesið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Íslenski boltinn Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 27-36 | Þungur róður í Dortmund Handbolti „Ein leiðin að gera hann nógu fúlan til að heimta að fá að fara“ Enski boltinn Sögulegt kvöld hjá Haaland endaði næstum því með algjöru klúðri Enski boltinn Segir að Wirtz hafi verið plataður til Liverpool Enski boltinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Íslenski boltinn Kolbeinn enn ósigraður eftir að hafa rotað Martinez Sport „Stór nöfn“ sáu Kolbein rifbeinsbrjóta Martinez Sport Vilja ekki feta í fótspor Söru: „Aðrir hlutir skipta meira máli en peningar“ Fótbolti Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Formúla 1 Fleiri fréttir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira