Segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir Samúel Karl Ólason skrifar 8. desember 2025 14:18 Friedrich Merz, Keir Starmer, Vólódímír Selenskí og Emmanuel Macron. AP/Toby Melville Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er mættur til Englands, þar sem hann fundar með Keir Starme forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron, forseta Frakklands og Friedrich Merz kanslara Þýskalands. Selenskí segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir.
Fundurinn fer fram á Downingstræti 10, þar sem Starmer býr, en Selenskí sagði í gærkvöldi að hann vildi sérstaklega ræða öryggismál við hina leiðtogana. Þá vildi hann ræða loftvarnir Úkraínu vegna ítrekaðra og umfangsmikilla árása Rússa, fjárhag úkraínska ríkisins og auðvitað yfirstandandi viðræður sem Bandaríkjamenn stýra um mögulegan frið í Úkraínu. Erindrekar frá Bandaríkjunum og Úkraínu hafa fundað stíft undanfarna daga en Selenskí sagði í gær að viðræðurnar hefðu verið innihaldsríkar. Hann sagði að enn þyrfti að skoða vel spurningar um yfirráðasvæði og öryggistryggingar. Zelenskyy has landed in London where he will discuss with UK and European leaders how to secure a “dignified peace” for his nation after years of Russia’s invasion. “We are joining our efforts to end this war with a dignified peace for Ukraine. Security must be guaranteed,” he… pic.twitter.com/g89f742uNX— Christopher Miller (@ChristopherJM) December 8, 2025 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur undanfarin misseri krafist þess að Úkraínumenn hörfi frá öllu Donbas-svæðinu svokallaða. Annars muni Rússar leggja það undir sig. Trump og meðlimir í ríkisstjórn hans hafa ítrekað gefið til kynna að þeir séu hlynntir því en Úkraínumenn segja það ekki koma til greina. Umrætt svæði þykir mjög víggirt og þar búa fjölmargir Úkraínumenn. Rússar hafa lagt mesta áherslu á að klára hernám Donbas-svæðisins en það hefur gengið hægt og verið mjög kostnaðarsamt. Nýlega bárust fregnir af því að í viðræðum sín á milli hefðu evrópskir þjóðarleiðtogar lýst yfir áhyggjum af því að Bandaríkjamenn gætu svikið Úkraínu og Evrópu. AP fréttaveitan hefur eftir Starmer að hann ætli ekki að þrýsta á Selenskí að samþykkja slæmt friðarsamkomulag. Trump skaut á Selenskí í gær og gaf til kynna að hann hefði ekki lesið ótilgreindar friðartillögur en úkraínska þjóðin elskaði þær. Þá sagði Trump að það væri úkraínski forsetinn sem stæði í vegi friðar en ekki Pútín. Helsti ráðgjafi Pútíns sagði í gær að þær tillögur sem væru til umræðu núna væru ekki nægjanlegar. Gera þyrfti umfangsmiklar breytingar á þeim. Sjá einnig: Segir Rússa viljuga en Selenskí ekki Áður en fundurinn hófst á Downingstræti ræddu leiðtogarnir stuttlega við blaðamenn. Macron sagði Evrópu- og Úkraínumenn hafa mörg spil á hendi. Varnir Úkraínumanna væru að halda og að rússneska hagkerfið ætti undir högg að sækja. Keir Starmer, Vólódímír Selenskí og kötturinn Larry, frægur íbúi Downingstræti 10.AP/Kin Cheung Þá sagði Merz að hann væri persónulega fullur efasemda um margar af tillögum Bandaríkjamanna sem ætlað er að koma á friði. Það væri meðal þess sem stæði til að ræða á fundinum. Starmer sagði að til að koma á friði þyrfti hann að vera sanngjarn og langvarandi. "We all support Ukraine, and we all support peace"European leaders, Sir Keir Starmer, Volodymyr Zelenskyy Emmanuel Macron and Friedrich Merz arrive in Downing Street for further negotiations over the US peace proposal for Ukraine. 📺 Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 pic.twitter.com/pANII1YCdq— Sky News (@SkyNews) December 8, 2025 Þá sagði Selenskí að mikilvægt væri að eining ríkti milli Evrópu og Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hefðu getu sem aðrir hefðu ekki og það sama væri satt um Evrópu. „Það er þess vegna sem við þurfum að taka mikilvægar ákvarðanir,“ sagði Selenskí samkvæmt BBC.
Úkraína Bretland Þýskaland Frakkland Rússland Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Donald Trump Vladimír Pútín Tengdar fréttir „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Sérfræðingur í varnar- og öryggismálum segir stöðu NATO áhyggjuefni í kjölfar útgáfu nýrrar þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og jafnframt stórkostlegt vandamál fyrir Ísland. Evrópa og Bandaríkin eigi ekki lengur samleið í öryggismálum Evrópu. 8. desember 2025 12:37 Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi Donald Trump yngri, elsti sonur forsetans, ýjaði að því á ráðstefnu í Katar í dag að faðir hans gæti hætt stuðningi við Úkraínu. Hann hélt langan reiðilestur yfir stjórnvöldum í Kænugarði og viðleitni þeirra til að halda áfram að verja sig. 7. desember 2025 19:54 „Samrýmist að miklu leyti okkar sýn“ Rússlandsstjórn fagnar nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna ákaft. Talsmaður Kremlar segir hana að miklu leyti samræmda stefnu Rússa. 7. desember 2025 18:06 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira
„Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Sérfræðingur í varnar- og öryggismálum segir stöðu NATO áhyggjuefni í kjölfar útgáfu nýrrar þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og jafnframt stórkostlegt vandamál fyrir Ísland. Evrópa og Bandaríkin eigi ekki lengur samleið í öryggismálum Evrópu. 8. desember 2025 12:37
Meiri ógn af smábátum í Karíbahafinu en Rússlandi Donald Trump yngri, elsti sonur forsetans, ýjaði að því á ráðstefnu í Katar í dag að faðir hans gæti hætt stuðningi við Úkraínu. Hann hélt langan reiðilestur yfir stjórnvöldum í Kænugarði og viðleitni þeirra til að halda áfram að verja sig. 7. desember 2025 19:54
„Samrýmist að miklu leyti okkar sýn“ Rússlandsstjórn fagnar nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna ákaft. Talsmaður Kremlar segir hana að miklu leyti samræmda stefnu Rússa. 7. desember 2025 18:06