„Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2025 09:50 Svæfingalæknirinn setti eitur og önnur efni í æðavökvapoka hjá sjúklingum kollega sinna. Kokteillinn átti að láta fólkið frá hjartaáfall eða blæðingar. Getty Franskur svæfingalæknir hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa eitrað fyrir þrjátíu sjúklingum. Tólf af þeim sem hann eitraði fyrir dóu. Saksóknarar segja hinn 53 ára gamla Frédéric Péchier vera einhvern versta glæpamann í sögu Frakklands.
Brotin framdi Péchier frá 2008 til 2017 á tveimur einkastofnunum í Besançon, sem er í austurhluta Frakklands. Fórnarlömb svæfingalæknisins voru frá fjögurra til 89 ára gömul, samkvæmt frétt Le Monde. Saksóknarar sögðu hann hafa mengað æðavökvapoka með lyfjakokteil sem ætlað var að láta sjúklinga kollega hans fá hjartaáfall eða blæðingar. Með þessu er Péchier sagður hafa viljað ná höggi á kollega sína sem hann átti í deilum við og gefa honum valdatilfinningu. „Þú ert Dr. Dauði, eitrari, morðingi. Þú smánar alla lækna,“ sagði saksóknari við Péchier í síðustu viku. Hann sagði svæfingalækninn hafa breytt vinnustöðum sínum í grafreiti. Réttarhöldin gegn svæfingalækninum hafa staðið yfir í um þrjá og hálfan mánuð en Péchier hefur gengið laus gegn tryggingu frá því í byrjun september. Lögmaður Péchier sagðist sannfærður um að læknirinn væri saklaus og krafðist sýknu á grunni skorts á sönnunargögnum. Péchier sjálfur bar vitni á mánudaginn og lýsti hann þá yfir sakleysi sínu en hann viðurkenndi þó að einhver hefði verið að eitra fyrir fólki á báðum vinnustöðum hans í gegnum árin. Það hefði ekki verið hann. „Ég er ekki eitrari.“ Í réttarhöldunum var Péchier lýst sem tilfinningalausum raðmorðingja. Lögmaður hans sagði það í eðli Péchiers. Hann vildi ekki sýna tilfinningar sínar en það gerði hann ekki að morðingja. Péchier hefur tíu daga til að áfrýja dómnum en lögmenn hans hafa sagt að það verði gert. Péchier hefur aldrei verið settur í gæsluvarðhald frá því rannsóknin hófst árið 2017, samkvæmt Le Monde. Fyrr en í dag. Hann var færður í fangelsi strax eftir að úrskurðurinn var ljós.
Frakkland Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira