Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. desember 2025 07:05 Áður en samkomulagið var í höfn hafði Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti varað við því að landið væri að verða uppiskroppa með fjármuni til að framleiða dróna. Getty/Diego Herrera Carcedo Evrópuleiðtogar hafa samþykkt að veita Úkraínu 90 milljarða evra lán til að mæta fjárhagslegum þörfum landsins næstu tvö árin en ekki náðist samkomulag um að nýta frystar eignir Rússlands til að fjármagna lánið.
Hugsunin er að Úkraína muni endurgreiða lánið með skaðabótum frá Rússlandi eftir að átökum líkur en Evrópusambandið áskilur sér rétt til þess að greiða lánið með hinum frystu eignum. Það voru Belgar sem mótmæltu notkun rússnesku eignanna hvað harðast en 88 prósent þeirra eru geymdar þar í landi. Þarlend stjórnvöld óttuðust að sitja ein uppi með kröfu af hálfu Rússa ef af yrði. Seðlabanki Rússlands hefur þegar höfðað mál á hendur Euroclear í Brussel, sem geymir eignirnar, og þá hafa forstjórar bankans orðið fyrir áreiti af hálfu öryggisþjónstu Rússa. Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði samkomulagið skýr skilaboð til Vladimir Pútín Rússlandsforseta um að eignirnar yrðu gerðar upptækar og notaðar til að greiða lánið ef Rússar samþykktu ekki að greiða Úkraínu skaðabætur. Merz og aðrir stuðningsmenn þess að nýta hið frysta fé höfðu meðal annars fært þau rök að það yrði ómögulegt að aðstoða Úkraínu með því að lána gegn tryggingu í útgjöldum Evrópusambandsins, þar sem það kallaði á samhljóma samþykki. Það reyndist hins vegar á endanum mögulegt, eftir að ríkjunum sem voru á móti því fyrirkomulagi; Ungverjaland, Slóvakíu og Tékklandi, var heimilað að taka ekki þátt í tryggingunni. Fjárþörf Úkraínu næstu tvö árin er metin á um 136 milljarða evra en vonast er til að aðrir bandamenn landsins sjái því fyrir þeim 45 milljörðum sem úti standa.
Evrópusambandið Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira