Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. desember 2025 12:00 Arne Slot þarf að finna einhvern annan til að stilla upp föstum leikatriðum liðsins, eða taka málin í sínar hendur. Nick Potts/PA Images via Getty Images Liverpool hefur fengið á sig flest mörk úr föstum leikatriðum af öllum liðum í ensku úrvalsdeildinni og Englandsmeistararnir hafa því gripið til róttækra aðgerða.
Aaron Briggs hefur verið rekinn en hann var þjálfari liðsins í föstum leikatriðum: hornspyrnum, aukaspyrnum og innköstum. Óvíst er hvort staðgengill verði fundinn í starfið en til að byrja með munu aðrir meðlimir þjálfarateymisins sinna þeim skyldum sem hann lætur eftir. Liverpool hefur fengið á sig tólf mörk úr föstum leikatriðum á þessu tímabili, þar af sjö úr hornspyrnum. Aðeins fallbaráttulið West Ham hefur fengið fleiri mörk á sig úr hornspyrnum, eða tíu talsins, en ekkert lið hefur fengið á sig fleiri mörk samanlagt úr föstum leikatriðum. Liverpool fær að meðaltali á sig 8,2 mörk úr hverjum 100 föstu leikatriðum og ofan á það hefur liðinu gengið illa að skora, eða aðeins 2,4 mörk að meðaltali úr hverjum 100 föstum leikatriðum. Í síðustu tveimur leikjum liðsins, gegn Tottenham og Wolves, var Liverpool með þægilega 2-0 forystu áður en liðið fékk á sig mark úr föstu leikatriði sem hleypti leiknum í háaloft. Aaron Briggs fékk starfið í fyrra þegar Arne Slot gerðist aðalþjálfari. Félagið hafði þá auglýst stöðuna lausa á LinkedIn, en ekki fengið ásættanlega umsækjendur. Briggs var því sóttur til félagsins en hefur nú verið látinn fara.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma Enski boltinn Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Golf Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Golf Sýna puttann til stuðnings Kane Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitaleikur enska bikarsins og risamót í golfi Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Heskey yngri tryggði City titil gegn United Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Benóný Breki fer á Wembley City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Dagskráin í dag: Allt undir hjá City og Benóný í umspili Southampton einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni White spilar ekki meira með Arsenal á tímabilinu De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Sjáðu mörkin og magnaðar vörslur hjá Kinský „Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Messan um stóra dóminn: „Þetta er bara rétt“ Tígrarnir einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Calvert-Lewin jafnaði og falldraugurinn enn á sveimi hjá Spurs Úr fótboltalandsliðinu í krikketlandsliðið Í fámennan hóp markvarða Sjá meira