Dóttir Tommy Lee Jones fannst látin Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2026 07:58 Tommy Lee Jones og Victoria Jones á rauða dreglinum árið 2017. EPA Victoria Jones, fyrrverandi barnastjarna og dóttir bandaríska leikarans Tommy Lee Jones, fannst látin á hóteli í San Francisco aðfaranótt gærdagsins. Hún varð 34 ára.
Bandarískir fjölmiðlar greina frá þessu, en lögreglu barst tilkynning um málið klukkan þrjú um nótt að staðartíma. People greinir frá því að starfsfólk hótelsins Fairmont Hotel hafi fyrst gert endurlífgunartilraunir og kallað til sjúkralið, en ekki hafi tekist að bjarga lífi Jones og var hún úrskurðuð látin á vettvangi. Ekki hefur verið gefið upp hvað dró Jones til dauða. Victoria Jones var dóttir stórleikarans Tommy Lee Jones og fyrstu eiginkonu hans, Kimberlea Cloughley. Þau voru gift á árunum 1981 til 1996 og eiga einnig son saman sem er 42 ára. Victoria Jones fylgdi á sínum tíma í fótspor föður síns og hóf leiklistarferil ung að árum. Hún fór með hlutverk í myndinni Men in Black II árið 2002 þegar hún var tíu ára gömul. Síðar átti hún eftir að fara með hlutverk í sjónvarpsþáttunum One Tree Hill og myndinni The Three Burials of Melquiades Estrada frá 2005 sem faðir hennar leikstýrði. Tommy Lee Jones er sjálfur þekktur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Men In Black, Natural Born Killers og Batman Forever. Hann vann til Óskarsverðlauna árið 1994 fyrir hlutverk sitt í The Fugitive.
Andlát Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sahara Ray látin Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira