Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2026 16:30 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir snýr aftur á hliðarlínuna í Bestu deild kvenna næsta sumar. Vísir/Vilhelm Ian Jeffs er tekinn við Íslandsmeistaraliði Breiðabliks í kvennafótbolta og hann er nú búinn að setja saman þjálfarateymi sitt fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna.
Blikar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn tvö síðustu ár og unnu þrefalt síðasta sumar, urðu Íslandsmeistarar í október, bikarmeistarar í ágúst og deildbikarmeistarar í mars auk þess að komast áfram í Evrópubikarnum í nóvember. Nik Chamberlain hætti með Breiðablik eftir tímabilið og tók við Kristianstad í Svíþjóð. Blikar voru búnir að segja frá ráðningu Ian Jeffs en þeir byrjuðu nýtt ár með að tilkynna hvernig þjálfarateymi hans lítur út. Honum til halds og trausts verða aðstoðarþjálfararnir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og Stefán Logi Magnússon en Stefán mun jafnframt sinna markmannsþjálfun liðsins. Þá verður Hjörtur Fjeldsted styrktarþjálfari liðsins. Ásgerður Stefanía, eða Adda eins og flestir þekkja hana, gerði flotta hluti sem aðstoðarþjálfari Péturs Péturssonar hjá Val. Undir þeirra stjórn unnu Valskonur bæði Íslands- og bikarmeistaratitil en Ásgerður Stefanía lék áður með liðinu og vann titla með bæði Val og Stjörnunni. View this post on Instagram A post shared by Breiðablik FC (@breidablikfc)
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Sjá meira