„Ég er viss um að sigrarnir koma aftur“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2026 17:49 Cody Gakpo hélt að hann hefði tryggt Liverpool sigurinn og fagnaði með því að rífa sig úr að ofan. Getty/Justin Setterfield Cody Gakpo, framherji Liverpool, hélt að hann hefði tryggt Liverpool öll þrjú stigin á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni en Fulham náði að jafna metin í 2-2 á sjöundu mínútu uppbótartímans. „
Já, það er rétt, ég hélt að þetta væri sigurmarkið. Um leið og ég settist á bekkinn skoruðu þeir. Þetta eru vonbrigði fyrir okkur,“ sagði Cody Gakpo við BBC Match of the Day. Frábært mark hjá þeim „Við börðumst mjög hart í seinni hálfleik, vorum ráðandi á köflum og reyndum að skapa færi til að komast í gegn. Að lokum skoraði ég á 95. mínútu, þeir skoruðu á 97. mínútu – frábært mark, satt best að segja. Óheppni, ólán,“ sagði Gapko. Harrison Reed tryggði Fulham jafntefli með stórkostlegu marki á sjöundu mínútu uppbótartímans. „Þetta er eitthvað sem getur gerst í leik. Ég var nýbúinn að setjast niður svo ég sá ekki hvað gerðist á undan. Ég sá hann bara taka við boltanum og skjóta honum upp í hornið,“ sagði Gapko. Hefðum kannski átt að skora fleiri mörk „Ég held að ef maður greinir leikinn hefðum við kannski átt að skora fleiri mörk eða verjast mörkunum tveimur betur. Að lokum hefðum við átt að gera mun betur. Það voru augnablik þar sem við sýndum hversu góðir við erum en það er okkar að halda stöðugleika og sýna betri frammistöðu í heildina. Ég er viss um að sigrarnir koma aftur,“ sagði Gapko. Hann spilaði í kvöld sem níu eða sem fremsti maður liðsins en ekki á kantinum eins og vanalega. „Sem framherji viltu alltaf skora mörk til að hjálpa liðinu svo það er plús fyrir mig. Að lokum er þetta liðsíþrótt og við unnum ekki svo ég er samt vonsvikinn,“ sagði Gapko.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira