Lögmenn frá Juris til LEX Atli Ísleifsson skrifar 6. janúar 2026 07:45 LEX er ein stærsta og elsta lögmannsstofa á Íslandi með yfir fimmtíu starfsmenn og þar af sautján eigendur. LEX LEX hefur fengið til liðs við sig lögmennina Finn Magnússon, Stefán A. Svensson og Sigurbjörn Magnússon, sem allir koma frá lögmannsstofunni Juris.
Í tilkynningu segir að Stefán sé auk þess formaður Lögmannafélagsins. Stefán og Finnur ganga til liðs við LEX sem eigendur en Sigurbjörn sem ráðgjafi. Auk þessara þriggja fylgja aðrir reyndir lögmenn á LEX frá Juris, Jóhannes Tómasson, Dagur Fannar Jóhannesson og Þórarinn Þorgeirsson. „Finnur Magnússon er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hann lauk LL.M. námi við háskólann í Vínarborg og doktorsnámi við sama háskóla árið 2013. Finnur hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2002, aðallega á sviði fjármálalöggjafar og félagaréttar. Finnur kennir við lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík og hefur verið gestafræðimaður við Háskólann í Cambridge. Finnur hefur flutt fjölda mála fyrir héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti, auk þess að flytja mál fyrir EFTA-dómstólnum. Frá 2015 hefur Finnur verið tilnefndur af utanríkisráðuneytinu til að taka sæti á lista gerðardómara við ICSID stofnunina í Washington. Í umsögnum alþjóðlegra matsfyrirtækja, s.s. Chambers og Legal 500, hefur Finns verið getið á lista yfir lögmenn sem mælt er með. Stefán A. Svensson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hann lauk LL.M. námi í viðskiptarétti við Cambridge háskóla árið 2008. Stefán hefur starfað sem lögmaður frá árinu 2005 og er lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Þá hefur hann gegnt trúnaðarstörfum fyrir Lögmannafélag Íslands og var kjörinn formaður Lögmannafélags Íslands árið 2024. Stefán hefur flutt fjölda mála meðal annars á sviði viðskiptaréttar, þ.m.t. fordæmisgefandi mál, fyrir íslenskum dómstólum og hefur einnig flutt mál fyrir EFTA-dómstólnum ásamt því að hafa verið kvaddur sem sérfræðivitni um íslenskan rétt í þrígang fyrir enskum dómstólum og einu sinni fyrir alþjóðlegum gerðardómi. Í umsögnum alþjóðlegra matsfyrirtækja, þ.á.m. Chambers og Legal 500, hefur Stefáns ítrekað verið getið á lista yfir þá lögmenn sem sérstaklega er mælt með. Sigurbjörn Magnússon er reynslumikill lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti. Hann lauk cand. jur. námi við lagadeild Háskóla Íslands árið 1985 og hefur starfað sem lögmaður frá árinu 1990. Sigurbjörn sinnir hagsmunagæslu fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi, innflutnings- og útflutningsfyrirtæki, fjölmiðlafyrirtæki, o.fl., en sérsvið hans eru fyrirtækja- og viðskiptaréttur, málflutningur og úrlausn deilumála, eignaréttur, samkeppnisréttur o.fl. LEX er ein stærsta og elsta lögmannsstofa á Íslandi með yfir 50 starfsmenn og þar af 17 eigendur. Stjórn félagsins skipa lögmennirnir Stefán Orri Ólafsson stjórnarformaður, Lára Herborg Ólafsdóttir og Guðmundur Ingvi Sigurðsson,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Láru Herborgu Ólafsdóttur, einum eiganda og stjórnarmanni hjá LEX, að það sé „mikill styrkur fyrir stofuna að fá þennan öfluga hóp reynslumikilla lögmanna til liðs við LEX og fellur vel að þeirri stefnu sem við höfum markað um áframhaldandi vöxt, gæði og sérhæfingu.“
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Sjá meira