Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 16:12 Florian Wirtz skorar hér markið sitt á móti Fulham en varnarmaður Fulham heimtar rangstöðu. Getty/Shaun Brooks Myndbandsdómarinn gerði ekki mistök með því að dæma mark Florian Wirtz fyrir Liverpool gegn Fulham gilt, að sögn nefndar ensku úrvalsdeildarinnar um lykilatvik í leikjum.
Liverpool var 1-0 undir á Craven Cottage á 57. mínútu þegar Wirtz náði boltanum eftir snertingu frá Connor Bradley og skoraði. Aðstoðardómarinn lyfti strax flaggi sínu fyrir rangstöðu á þýska landsliðsmanninum. Myndbandsdómarinn, Andy Madley, greip inn í og dæmdi markið gilt eftir að hafa beitt hálfsjálfvirkri rangstöðutækni. Wirtz naut góðs af fimm sentímetra skekkjumörkum, oftast nefndar þykkari línur, sem eru hluti af SAOT-kerfi ensku úrvalsdeildarinnar. Ekki löglegt mark í öðum löndum Ef markið hefði verið skorað í Þýskalandi, Ítalíu eða á Spáni hefði það verið dæmt af. Þessar deildir beita engum skekkjumörkum. Þetta var umdeild ákvörðun þar sem myndir sem sýndar voru í sjónvarpi gáfu til kynna að Wirtz væri greinilega fyrir innan síðasta varnarmanninn. Einróma ákvörðun Nefndin um lykilatvik í leikjum studdi samt Madley einróma og sagði: „Inngrip VAR til að dæma markið gilt var stutt sem rétt ákvörðun í ljósi þess hversu tæp rangstaðan var og notkunar á þykkari rangstöðulínum í svona ótrúlega tæpum tilvikum.“ Leikurinn endaði 2-2 og Marco Silva, stjóri Fulham, lýsti marki Wirtz sem „augljósri rangstöðu“ og kallaði eftir skýringum. Silva sagði að félagið hefði haft samband við samtök atvinnudómara til að leggja fram kvörtun. Misræmið í vali á myndaramma BBC Sport hefur heimildir fyrir því að misræmið liggi í vali sjónvarpsstöðvarinnar á myndaramma. Myndbandsdómarinn valdi þann ramma þegar Bradley snerti boltann fyrst, ekki þegar hann fór af fæti hans. Sjónvarpsstöðin frysti myndina einum ramma síðar, sem gaf þá mynd að Wirtz væri augljósar rangstæður.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira