Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Kjartan Kjartansson skrifar 19. janúar 2026 12:11 Skýringarmynd af banaslysinu við Steinafjall úr skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. Konan lést samstundis þegar þrjú til fjögur hundruð kílóa þungt grjót losnaði ofarlega úr Steinafjalli og féll ofan á þak bíls sem hún ók 31. mars í fyrra. Tvær samferðarkonur hennar sluppu án alvarlegra meiðsla. Engar varnir voru gegn grjóthruni við hringveginn þar sem slysið átti sér stað þrátt fyrir að staðurinn sé þekktur fyrir það. Umferðarskilti vara við hættunni hvort sínu megin við fjallið. Í skýrslu sem birt var í dag beinir rannsóknarnefndin því til Vegagerðarinnar að vinna þegar að úrbótum á hringveginum við Steinafjall vegna hættunnar á grjóthruni. „Gera þarf viðeigandi úrbætur til að bæta umferðaröryggi þar sem umferð um vegarkaflann hefur aukist mikið undanfarin ár og búast má við vaxandi umferð,“ segir í tillögum nefndarinnar í öryggisátt. Umferð um hringveginn á þessum kafla hefur rúmlega fimmfaldast frá árinu 2000. Líkurnar á sambærilegu slysi hafi því aukist, að mati nefndarinnar. Fram kemur í skýrslunni að yfirvöld í Rangárþingi eystra hafi lagt fram tillögu um breytta legu hringvegarins við Steinafjall í september. Málið hafði ekki verið afgreitt endanlega þegar skýrsla rannsóknarnefndarinnar var skrifuð. Tillagan gengur út á að færa hringveginn fjær fjallinu á kafla. Tókst á loft af vegarkantinum Talið er að grjótið sem banaði konunni hafi losnað ofarlega í fjallinu úr nær lóðréttum klettavegg í um fjögur til fimm hundruð metra hæð. Hnullungurinn er sagður hafa komið í loftköstum niður hlíðina, lent í vegarkanti þar sem hann tókst á loft og lenti ofan á KIA Sportage-bifreið ferðakvennanna sem var ekið austur eftir hringveginum. Grjótið hafnaði ofan á þaki bifreiðarinnar, beint yfir sæti ökumannsins. Tveir farþegar um borð í bílnum sluppu án alvarlegra meiðsla.Rannsóknarnefnd samgönguslysa Grjótið lenti á þakinu yfir vinstri hlið bifreiðarinnar, beint yfir ökumannssætinu. Konan er sögð hafa látist samstundis af fjöláverkum sem hún hlaut. Þegar viðbragðsaðila bar að garði var lík konunnar enn klemmt fast inni í bifreiðinni. Hún var úrskuðuð látin á vettvangi. Bifreiðin staðnæmdist utan vegar, sunnan megin við hringveginn, um áttatíu metra frá þeim stað sem grjótið skall á henni. Grjótið stöðvaðist utan vegar um 35 metrum frá slysstaðnum samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þekkt fyrir grjóthrun Hættan á grjóthruni var vel þekkt löngu áður en slysið varð í fyrra. Neðstu 160 til 200 metrar fjallsins eru enda þakktir skriðuefni. Veðurstofa Íslands vann greinargerð um grjóthun úr Steinafjalli í kjölfar hruns í september árið 1997. Þá féll fimmtíu til sjötíu tonna bjarg á veginn. Talið er að grjótið hafi losnað úr klettavegg ofarlega í Steinafjalli.Rannsóknarnefnd samgönguslysa Rannsóknarnefndin vísaði einnig til umfjöllunar fjölmiðla um grjóthrun úr fjallinu á veginn árin 2008 og 2012 þar sem stórir steinar ultu út á þjóðveginn. Tveimur bifreiðum var ekið á steina án slysa á fólki árið 2012. Heimamenn sögðu nefndinni að grjóthrun væri mun algengara en skráðar heimildir segðu til um. Reglulega þyrfti að fjarlægja grjót af veginum. Slíkt hrun væri algengast á vorin og haustin. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Samgönguslys Rangárþing eystra Umferðaröryggi Umferð Ferðaþjónusta Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Samgönguslys Rangárþing eystra Umferðaröryggi Umferð Ferðaþjónusta Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira