Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 12:45 Guy Smit er orðinn leikmaður Njarðvíkur Vísir/Anton Brink Markvörðurinn Guy Smit er orðinn leikmaður Lengjudeildar liðs Njarðvíkur og mun reyna að hjálpa liðinu að komast upp í Bestu deildina undir stjórn Davíðs Smára Lamude sem hann spilaði áður hjá með liði Vestra og varð bikarmeistari með.
Mikil styrking fyrir Njarðvíkinga sem eru að fara inn í sitt fyrsta tímabil undir stjórn Davíðs Smára og stefnan sett beint upp í Bestu deildina. Smit lék lykilhlutverk í liði Vestra á síðasta tímabili þar sem að hann varði oft á tíðum virkilega vel eftir fremur dapran tíma í herbúðum KR þar áður. Vestri féll úr Bestu deildinni en varð bikarmeistari en fljótt varð ljóst að Smit myndi ekki verja mark liðsins á komandi tímabili. Áhugi var á hans kröftum erlendis frá en nú hefur hann samið við Njarðvíkinga. Smit er ekki fyrsti leikmaðurinn sem Davíð Smári sækir úr Vestra verkefni sínu. Miðvörðurinn reynslumikli, Eiður Aron Sigurbjörnsson gekk í raðir Njarðvíkinga fyrir ekki svo löngu síðan. Njarðvíkingar hafa verið að styrkja hópinn vel í aðdraganda komandi tímabils í Lengjudeildinni. Í gær var til að mynda greint frá því að liðið hefði keypt Braga Karl Bjarkason frá FH og er þá listinn yfir nýja leikmenn liðsins ekki tæmdur. Með komu Guy Smit fá Njarðvíkingar afar reynslumikinn mann í markið. Guy er þrítugur markvörður sem er fæddur í Hollandi, en hefur leikið á Íslandi frá árinu 2020 þegar hann kom fyrst til Leiknis Reykjavíkur, þar sem hann hjálpaði þeim að komast upp úr Lengjudeildinni í þá Bestu. Auk Leiknis hefur Guy leikið með Val, KR, ÍBV og nú síðast Vestra
Lengjudeild karla UMF Njarðvík Vestri Mest lesið „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Fylkir - HK | Heimamenn með eins marks forskot í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fylkir - HK | Heimamenn með eins marks forskot í úrslitaleikinn Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Sjá meira