„Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. febrúar 2026 18:30 Mette-Marit krónprinsessa og dóttir hennar Ingrid Alexandra. EPA „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ spyr fréttastjóri hjá Aftenposten í samnefndri grein sem birtist í dag. Birting tölvupóstasamskipta hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein á dögunum bætir gráu ofan á svart hvað stöðu hennar innan konungsfjölskyldunnar varðar.
Mjög hefur gustað um norsku konungsfjölskylduna síðan í ljós, kom með birtingu nýs umgangs skjala úr máli barnaníðingsins Jeffrey Epstein, að samskipti hans og Mette-Marit krónprinsessu voru talsvert innilegri en fyrir lá. Opinberlega hafði norska konungsfjölskyldan gefið út í fjölmiðlum að Mette-Marit hefði hætt samskiptum við hann árið 2013. París henti til framhjáhalds Ríflega þrjár milljónir skjala úr Epstein-skjölunum svokölluðu voru gerð opinber af bandaríska dómsmálaráðuneytinu í fyrradag en þar er krónprinsessan Mette-Marit nefnd nokkur hundruð sinnum. Einnig var birtur nokkur fjöldi tölvupósta sem Epstein og Mette-Marit sendu hvort öðru. Hún dvaldi einnig í fjóra daga í höll Epstein í Palm Beach í Flórídaríki. Árið 2012 áttu þau meðal annars samræðu um yfirstandandi „brúðarveiðar“ Epsteins í Parísarborg. Hann var þá dæmdur kynferðisafbrotamaður. „París hentar vel til framhjáhalds. Skandinavar eru betra brúðarefni,“ skrifaði krónprinsessan norska meðal annars. Mál sonarins dómtekið í næstu viku Mette-Marit hefur brugðist við umfjölluninni sem hefur eðlilega vakið mikla athygli í Noregi og víðar. Hún kveðst sjá eftir samskiptum sínum með Epstein, hún hafi sýnt af sér slæma dómgreind og finnist þetta mál allt hið pínlegasta. Í næstu viku verður mál Mariusar Borg Høiby sonar Mette-Marit dómtekið en hann hefur verið ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás.
Kóngafólk Noregur Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira