Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Samúel Karl Ólason skrifar 2. febrúar 2026 10:32 Taylor Rehmet mun þurfa að berjast aftur um þingsætið í nóvember og vonast andstæðingar hans í Repúblikanaflokknum til þess að fleiri kjósendur þeirra mæti á kjörstað þá. AP/KXAS Taylor Rehmet, frambjóðandi Demókrataflokksins til öldungadeildarsætis í ríkisþingi Texas, verkalýðsleiðtogi og uppgjafarhermaður, vann mjög svo óvæntan sigur í kosningum á laugardaginn. Úrslitin þykja líkleg til að valda áhyggjum meðal leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir þingkosningarnar í nóvember.
Umrætt þingsæti hafði verið í höndum Repúblikana í áratugi en Kelly Hancock, sem hafði setið í því í fjögur kjörtímabil, hætti nýverið. Leigh Wambsganss, frambjóðandi Repúblikanaflokksins, varði mun meira af peningum í kosningabaráttuna en Rehmet og þar að auki hafði Donald Trump sigrað í kjördæminu í forsetakosningunum 2024 með sautján prósentustigum. Rehmet bar þó sigur úr bítum með fjórtán prósentustiga mun, 57 prósent gegn 43. Sigurinn hefur vakið mikla athygli og fylgir hann á hæla sambærilegra úrslita fyrir Demókrata víða um Bandaríkin á undanförnum mánuðum. Samkvæmt frétt Texas Tribune varði Rehmet um sjötíu þúsund dölum í kosningabaráttuna en Wambsganss varði um 736 þúsund dölum. Báðir frambjóðendur nutu þó stuðnings annarra aðila sem vörðu einnig fúlgum fjár í baráttuna. This win goes to everyday, working people.I’ll see you out there! pic.twitter.com/kPWzjn2LhW— Taylor Rehmet (@TaylorRehmetTX) February 1, 2026 Þvoði hendur sínar af kosningunum Þegar Trump var spurður út í úrslitin í gær sagðist hann ekkert vita um þessar kosningar og að þær kæmu honum í raun ekkert við. Degi áður hafði hann ausið lofi yfir Wambsgangss á samfélagsmiðli sínum og lýst henni sem frábærum frambjóðanda sem nyti fulls stuðnings síns. Í annarri færslu sem hann birti á laugardaginn hvatti hann íbúa í Texas til að greiða Wambsganss atkvæði og sagði hana mikinn stuðningsmann MAGA-hreyfingarinnar. Q: In Texas, a Democrat won a special election in an area you won by 17 points. What is your reaction?TRUMP: I don't know. I didn't hear about it. Somebody ran -- where?Q: In TexasTRUMP: I'm not involved in that. That's a local Texas race. You mean I won by 17, and this… pic.twitter.com/5AcrXd4bc3— Aaron Rupar (@atrupar) February 1, 2026 Wambsganss sagði í yfirlýsingu eftir að úrslitin voru ljós að úrslitin ættu að vekja athygli innan Repúblikanaflokksins. Hún sagði þó einnig að niðurstaðan verði allt önnur þegar hún og Rehmet munu berjast aftur um þingsætið í kosningunum í nóvember. Þá verði kjörsókn meðal kjósenda Repúblikanaflokksins betri. AP fréttaveitan hefur eftir Dan Patrick, aðstoðarríkisstjóra Texas, að kosningarnar ættu að hringja viðvörunarbjöllum hjá Repúblikönum í ríkinu, þar sem þeir stjórna miklum meirihluta opinberra embætta. Demókrati hefur ekki unnið kosningar um embætti þar sem allir íbúar Texas fá að kjósa um frá árinu 1994. Patrick sagði að kosningar sem þessar væru alltaf óútreiknanlegar, þar sem kjörsókn væri oft lítil og sagðist hann sannfærður um að Repúblikanar myndu taka sætið aftur í þingkosningunum í nóvember. Texas Tribune segir að í aðdraganda kosninganna á laugardaginn hafi Patrick farið mikinn í að reyna að hvetja kjósendur til að mæta á kjörstað. Repúblikanar með áhyggjur Þessi kosning er þó ein margra sérstakra kosninga á undanförnu ári, þar sem Demókratar hafa staðið sig mun betur en búist var við. Þeir hafa unnið óvænta sigra víðsvegar um Bandaríkin og í mörgum tilfellum í ríkjum og kjördæmum þar sem Repúblikönum hefur iðulega vegnað betur í gegnum árin. Þetta hefur valdið áhyggjum innan Repúblikanaflokksins og þá sérstaklega hvað varðar fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanar eru með mjög nauman meirihluta. Donald Trump og aðrir leiðtogar Repúblikanaflokksins hafa þrýst á ráðamenn í ríkjum þar sem Repúblikanar eru með völd til að breyta kjördæmum ríkjanna með því markmiði að fækka kjördæmum þar sem Demókratar eiga séns á að ná kjöri. Það að breyta kjördæmum með þessum hætti, í hag annars flokksins í Bandaríkjunum, kallast „Gerrymandering“ á ensku. Í einföldu máli sagt er þetta gert með því að þjappa mörgum kjósendum eins flokks í fá kjördæmi og þynna út atkvæði annarra. Til dæmis er það gert með því að skera borgir í litlar sneiðar og gera þær að hluta af stærri svæðum þar sem kjósendur Repúblikanaflokksins eru fleiri. Demókratar hafa brugðist við þessum aðgerðum Repúblikana með eigin breytingum á kjördæmum í ríkjum eins og Kaliforníu, þar sem Demókratar stjórna. Sjá einnig: Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Trump sagði á dögunum að ef Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni muni þeir líklega gera sitt besta til að ákæra hann aftur fyrir embættisbrot. Þegar Trump ávarpaði Repúblikana í upphafi árs hóf hann ræðu sína á að spyrja þingmenn hvað væri eiginlega að gerast í hausnum á kjósendum. „Ég óska þess að þið gætuð útskýrt fyrir mér hver fjandinn er að gerast í hugum almennings. Því við erum með réttu stefnumálin, ekki þeir. Þeir eru með hræðileg stefnumál.“ Seinna í ávarpinu sneri hann sér aftur að kosningunum og lýsti yfir furðu sinni á því að Repúblikanar þyrftu yfir höfuð að eiga í kosningabaráttu við Demókrata. Þá talaði hann um það að hætta við kosningarnar í nóvember. „Ég ætla ekki að segja hættum við kosningarnar, þeir ættu að hætta við kosningarnar. Því þá segja fölsku fjölmiðlarnir: „Hann vill hætta við kosningarnar. Hann er einræðisherra“. Þeir kalla mig alltaf einræðisherra.“ Enn seinna í ræðunni sagði Trump að Repúblikanar yrðu að taka pólitíkina alvarlega. Ef þeir héldu ekki meirihluta þeirra á þingi myndu Bandaríkin fara til andskotans.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira