Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 13:00 Frá skotpallinum í Flórída. AP/Sam Lott Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að fresta því að senda geimfara til tunglsins þangað til í mars. Til stóð að skjóta fjórum geimförum af stað til tunglsins um næstu helgi en eldsneytislekar fundust í gær á Space Launch System (SLS) eldflauginni sem á að koma geimförunum í leiðangrinum Artemis 2 af stað.
Starfsmenn NASA byrjuðu í gær að dæla eldsneyti á SLS-eldflaugina og komu þá í ljós nokkrir lekar. Sambærilegir lekar leiddu til tafa með fyrsta geimskot Artemis-áætlunarinnar fyrir rúmum þremur árum síðan. Sjá einnig: Á fleygiferð til tunglsins Að þessu sinni stendur til að flytja fjóra geimfara sem eiga að fara á braut um tunglið, um borð í Orion-geimfari, og aftur til jarðar yfir tíu daga tímabil. Þeir voru nýlega settir í tveggja vikna sóttkví fyrir geimferðina en hefur nú verið hleypt út aftur, eftir að geimskotinu var frestað, samkvæmt AP fréttaveitunni. Þetta verður í fyrsta sinn frá tímum Apollo-áætlunarinnar sem menn verða sendir til tunglsins. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær í mars til stendur að reyna aftur að skjóta Artemis 2 af stað en forsvarsmenn NASA segja vísindamenn þurfa tíma til að fara yfir gögnin sem búið er að afla á síðustu dögum. NASA completed a wet dress rehearsal for the Artemis II mission in the early morning hours on Feb. 3. To allow teams to review data and conduct a second wet dress rehearsal, NASA will now target March as the the earliest possible launch opportunity for the Artemis II mission.… pic.twitter.com/jSnCUPLQb6— NASA (@NASA) February 3, 2026 Tilraunin sem hófst í gær gengur út á að dæla um 2,6 milljón lítrum af ofurkældu vetni og súrefni inn á tanka SLS og líkja eftir aðdraganda raunverulegs geimskots. Það tókst ekki, þar sem mikill þrýstingur myndaðist neðst í eldflauginni. Dæling eldsneytis var tvisvar sinnum stöðvuð í gær áður en hætt var við tilraunina. Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Nota á tunglið sem stökkpall lengra út í sólkerfið. Í grískri goðafræði er Artemis systir Apollos. Artemis 2 er eins og nafnið gefur til kynna, annað geimskotið í áætluninni. Um mitt ár 2027 á, samkvæmt áætlunum NASA, að lenda geimförum á tunglinu í fyrsta sinn frá desember 1972, þegar geimfararnir Gene Cernan og Harrison Schmitt urðu ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins.
Bandaríkin Geimurinn Artemis-áætlunin Tunglið Tengdar fréttir Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í gær út tilskipun um að koma mönnum til tunglsins fyrir 2028 og reisa þar varanlega bækistöð fyrir 2030. Var það nokkrum klukkustundum eftir að Jared Isaacman tók formlega við sem nýr yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), eftir að Trump hafði áður dregið tilnefningu hans til baka. 19. desember 2025 09:04 Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Forsvarsmenn geimfyrirtækisins SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, auðugasta manns heims, eru staðráðnir í því að lenda geimförum á tunglinu og nota Starship-geimfar til þess. Starfandi yfirmaður NASA bauð á dögunum fyrirtækjum að gera aftur tilboð í að lenda geimförum á tunglinu og þar með taka yfir samning sem SpaceX hlaut árið 2021. 1. nóvember 2025 08:02 Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Bandaríkjamenn ætla að flýta áætlunum sínum sem snúa að því að senda kjarnakljúf til tunglsins. Nú stendur til að koma kljúfi til tunglsins fyrir árið 2030 og stendur til að nota hann til að knýja bækistöð á tunglinu um árabil. 8. ágúst 2025 07:02 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í gær út tilskipun um að koma mönnum til tunglsins fyrir 2028 og reisa þar varanlega bækistöð fyrir 2030. Var það nokkrum klukkustundum eftir að Jared Isaacman tók formlega við sem nýr yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), eftir að Trump hafði áður dregið tilnefningu hans til baka. 19. desember 2025 09:04
Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Forsvarsmenn geimfyrirtækisins SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, auðugasta manns heims, eru staðráðnir í því að lenda geimförum á tunglinu og nota Starship-geimfar til þess. Starfandi yfirmaður NASA bauð á dögunum fyrirtækjum að gera aftur tilboð í að lenda geimförum á tunglinu og þar með taka yfir samning sem SpaceX hlaut árið 2021. 1. nóvember 2025 08:02
Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Bandaríkjamenn ætla að flýta áætlunum sínum sem snúa að því að senda kjarnakljúf til tunglsins. Nú stendur til að koma kljúfi til tunglsins fyrir árið 2030 og stendur til að nota hann til að knýja bækistöð á tunglinu um árabil. 8. ágúst 2025 07:02