Góð þjónusta í Garðabæ skilar árangri Almar Guðmundsson skrifar 3. febrúar 2026 13:46 Í sívaxandi sveitarfélagi skiptir mestu máli að daglegt líf gangi vel, að þjónustan sé aðgengileg, traust og í takti við væntingar íbúa. Nýjustu niðurstöður þjónustukönnunar sýna að þjónustan í Garðabæ er góð og álit íbúa á henni er að þróast í rétta átt í nánast öllum tilvikum. Þær gefa okkur ástæðu til að vera ánægð. Ég er stoltur af öflugu starfsfólki Garðabæjar og vil óska þeim til hamingju. Niðurstöðurnar gefa okkur einnig tækifæri til að bera okkur saman við önnur sveitarfélög, en það er ljóst að í þeim samanburði stendur Garðabær einkar vel. Um leið eru niðurstöðurnar mikilvæg áminning um að verkefnin klárast aldrei. Samfélag í þróun kallar á stöðuga endurskoðun á þjónustunni og það er í raun jákvætt að við finnum alltaf nýja fleti sem hægt er að bæta. Þjónusta sem íbúar treysta Grunnstoðir Garðabæjar eru sterkar. Íbúar meta Garðabæ almennt mjög vel sem stað til að búa á og er heildarupplifun af þjónustu sveitarfélagsins jákvæð og hvergi meiri. Það er ánægjulegt að sjá að málefni barna og fjölskyldna halda áfram að styrkjast, hvort sem horft er til grunnskóla, frístundastarfs eða leikskólamála. Þessi málefni skipta okkur miklu máli, að góðir skólar séu til staðar fyrir börnin, að framboð af tómstundum sé gott, að börnum og fjölskyldum líði vel í bænum okkar. Ef við skoðum tölurnar þá sjáum við að 87% íbúa eru ánægð með þjónustu leikskóla, 84% íbúa eru ánægðir með þjónustu grunnskóla og hátt í 88% lýsa yfir ánægju með aðstöðu til íþróttaiðkunar. Samanborið við önnur sveitarfélög sem tóku þátt í könnuninni mælist ánægja með leikskólamál og þjónustu bæjarins á heildina litið hæst í Garðabæ. Ég kemst ekki hjá því að finna fyrir stolti og miklu þakklæti þegar maður fær staðfestingu á því að vel gangi. Breytingar sem skipta máli Við viljum veita góða þjónustu en það fylgja því áskoranir þegar fjölgun íbúa er hröð og kröfurnar aukast. Þess vegna er mikilvægt að horfa sérstaklega á þær breytingar sem verða á milli mælinga. Þar fáum við úr því skorið hvort umbótavinna sé að skila sér. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá aukna ánægju með þjónustu við eldri borgara. Þetta er ekki bara spurning um verkefnalista, þetta snýst um gæði daglegs lífs og félagslega ábyrgð. Á sama hátt er ánægjulegt að markviss vinna okkar við að bæta þjónustu við fatlað fólk sé að skila sér, enda eykst ánægjan verulega á milli ára. Um leið er ljóst að við þurfum að gera enn betur þegar kemur að þjónustu við fatlaða. Kannanir sem þessar hjálpa okkur að greina hvar skórinn kreppir og styðja við markvissar úrbætur. Við erum ekki hætt Garðabær fagnar hálfrar aldar afmæli og enginn vafi er á því að samfélagið okkar hefur tekið stakkaskiptum á þeim tíma. Að 86% íbúa séu ánægð með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið, ásamt því að Garðabær mælist vel yfir meðaltali og í efstu sætunum í flestum þjónustuþáttum samanborið við 20 stærstu sveitarfélög landsins, eru frábærar fréttir. Heiðurinn af þessum árangri á fyrst og fremst starfsfólk bæjarins, fólk sem vinnur af heilindum, sýnir metnað og er tilbúið að aðstoða íbúa, og því er ég þakklátur. Nú er ekki tíminn til að slaka á, nú er tíminn til að hugsa hvernig við ætlum að ná enn lengra og fljúga enn hærra næstu 50 árin. Höfundur er bæjarstjóri Garðabæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almar Guðmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar