Að stíga eitt skref til baka Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 16:03 Í heimi glundroða, hávaða og ógnarhraða, er auðvelt að týna sjálfum sér. Að missa tenginguna við eigið hjarta, að gleyma hver maður er, hvað skiptir máli og á hvaða vegferð maður raunverulega er í lífinu. Kannski einmitt þess vegna hefur aldrei verið ríkari ástæða en einmitt núna til að stíga eitt skref til baka. Í ró og kyrrð með sjálfum þér, frá amstri dagsins með hugan mjúkan og opinn, býð ég þér að ímynda þér að þú stígir eitt skref til baka. Horfðu yfir líf þitt með mildi eins og þú værir áhorfandi. Hvað sérðu? Hvernig líður þér þegar þú horfir yfir vegferð þína? Getur þú séð ákveðin mynstur sem hafa mótast með tímanum? Getur þú séð hvernig það sem þú hefur hugsað og valið í gegnum tíðina, hvernig ákvarðanir þínar og athafnir, stórar sem smáar, hafa leitt þig hingað, á þann stað sem þú ert á í dag? Spurðu sjálfan þig með hlýju og forvitni: Er lífið mitt eins og ég óska mér?Finn ég fyrir gleði, ást, tilhlökkun og frið í hversdeginum?Er lífið sem ég hef skapað mér að gefa mér innri næringu og tilgang? Ef svarið er nei, hvers vegna? Er eitthvað sem hjartað þitt er að biðja um? Ef svo er, ertu þá tilbúin(n) að hlusta, virkilega hlusta? Líf okkar verður ekki til af tilviljunum eða örlögum sem við höfum enga stjórn á. Líf okkar er nákvæmlega það sem við gerum úr því sjálf. Við berum alla ábyrgð á því hvar við erum stödd og hvernig okkur líður. Eflaust stingur það margan að lesa þetta og kannski það fyrsta sem kemur upp í hugan er: en það sem gerðist var ekki mér að kenna, margt sem hefur gerst í lífi mínu hefur verið ósanngjarnt og þess vegna er líf mitt eins og það er, sem dæmi: líf mitt er ekki gott eða ekki eins og ég hafði hugsað mér af því að aðrir/utanaðkomandi áhrif skemmdu fyrir. Sannleikurinn er að stundum er lífið einfaldlega ekki sanngjarnt. Það getur verið ótrúlega erfitt. Það getur brotið hjarta okkar, aftur og aftur. Valdið okkur vonbrigðum, sársauka og missi. Á endanum er það þó alltaf í okkar eigin höndum hvernig við mætum því sem gerist. Við stjórnum ekki alltaf því sem verður á vegi okkar, en við eigum val um hvernig við bregðumst við, og það val er öflugt og breytir öllu. Við getum valið að festast, að halda í sársaukann, vera bitur, kenna öðrum um, og lifa áfram með þungan í hjartanu. Eða við getum þegar við erum tilbúin, ákveðið að horfast í augu við það sem var ósanngjarnt, viðurkennt sársaukann en samt valið að halda áfram. Án þess að láta það sem særði okkur halda áfram að stjórna lífi okkar. Velja að láta það þroska okkur og efla og mýkja hjarta okkar í stað þess að herða það. Þetta getur í einhverjum tilfellum kallað á algjörlega breytt hugarfar, þor og hugrekki að skoða hugsanir okkar, ákvarðanir, viðbrögð og gömul mynstur sem eru kannski löngu orðin úrelt, og standa í vegi fyrir að við getum vaxið og dafnað. Lífið á ekki að vera sífelld endurtekning eða strit og volæði eða hjá sumum bið eftir næstu helgi. Hvort að það er vont veður eða gott veður á ekki að hafa áhrif á líðan okkar. Sterkt, heilbrigt og jákvætt hugarfar ásamt sjálfskoðun gerir okkur að sterkum einstaklingum sem lifa innihaldsríku lífi, uppskera gleði, sátt og frið í hversdeginum. Hugarfar okkar er nefnilega það öflugasta sem við eigum það getur gert líf okkar dásamlegt, innihaldsríkt og gefandi eða ömurlegt, niðurdrepandi og sorglegt. Valið er alltaf okkar. Einmitt þess vegna er svo mikilvægt að staldra reglulega við. Að stíga eitt skref til baka og taka stöðuna, hef ég villst af leið eða er ég þar sem ég vil vera. Að lokum:Það sem þú hugsar,verður að orðum. Orðin verða að verkum.Verkin verða að hegðun.Hegðunin mótar karakter þinn.Karakterinn (hugarfarið) mótar líf þitt. Mundu að krafturinn býr innra með þér, í hverri hugsun, í hverju skrefi sem þú tekur. Höfundur er nemi í skapandi skrifum við Háskólann í Malmö. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar