Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 20:12 Oddur Gretarsson fór á kostum í kvöld fyrir Þór. Þór Akureyri Þórsarar sneru aftur til keppni af krafti í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar þeir skelltu Stjörnunni í Garðabæ, 29-24.
Fyrrverandi landsliðshornamaðurinn Oddur Gretarsson fór fyrir Þórsliðinu í kvöld og skoraði tíu mörk úr aðeins ellefu skotum. Hann nýtti öll fjögur vítaskot sín í leiknum. Þetta var aðeins þriðji sigur Þórs á tímabilinu og sá fyrsti síðan í október. Liðið náði með sigrinum að jafna Selfoss að stigum og komast upp fyrir Selfyssinga í 10. sæti. Liðin eru með níu stig, fjórum fyrir ofan ÍR sem situr eftir á botninum. Stjarnan og HK eru svo í 8. og 9. sæti með tíu stig hvort og bæði komin í fallbaráttu. Aðeins neðsta liðið fellur þó beint niður en liðið í næstneðsta sæti þarf að fara í umspil með liðum úr næstefstu deild. Þórsarar voru í miklu stuði í kvöld og höfðu náð sjö marka forskoti þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik, 17-10. Munurinn varð mestur níu mörk í seinni hálfleik og voru heimamenn aldrei líklegir til að vinna upp forskot gestanna. Oddur fór fyrir liði Þórs en Hafþór Már Vignisson var næstmarkahæstur með fimm mörk og Brynjar Hólm Grétarsson skoraði fjögur. Hjá Stjörnunni var Benedikt Marinó Herdísarson markahæstur með sex mörk en Hans Jörgen Ólafsson og Starri Friðriksson skoruðu fjögur mörk hvor.
Olís-deild karla Stjarnan Þór Akureyri Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Dagskráin í dag: Breiðablik getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira