Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. febrúar 2026 07:02 Gallego hefur komið sterkur inn á þing og er nú nefndur í tengslum við forsetakosningarnar árið 2028. Getty/Rebecca Noble Öldungadeildarþingmaðurinn Ruben Gallego frá Arizona hefur hvatt Bandaríkjamenn til þess að leggja niður störf í allsherjarverkfalli ef Donald Trump Bandaríkjaforseti og ríkisstjórn hans reyna að hafa afskipti af þingkosningunum í haust.
Trump sagði fyrri í vikunni að Repúblikanar ættu að „taka yfir“ og „þjóðnýta“ kosningarnar á að minnsta kosti fimmtán ótilgreindum stöðum. Þá hefur Steve Bannon, fyrrum ráðgjafi Trump, lagt til að fulltrúar innflytjendayfirvalda (ICE) verði sendir út til að hafa eftirlit með kjörstöðum, líklega til að koma í veg fyrir að innflytjendur geti kosið. Demókratinn Gallego, sem hefur verið nokkuð duglegur við að láta í sér heyra eftir að hann var kjörinn á þing árið 2024, sagði Bandaríkjamenn verða að vera viðbúna hinu versta. Nefndi hann meðal annars að stjórnvöld gætu mögulega reynt að umkringja kjörstaði, hafa afskipti af talningu atkvæða eða jafnvel leggja hald á kjörkassa. Gallego sagði kjósendur þurfa að vera viðbúna slíkum uppákomum og svara á afgerandi hátt, til að mynda með allsherjarverkfalli. Menn myndu þá leggja niður störf, sama hverjar afleiðingarnar yrðu. „Ef við þurfum að rústa hlutabréfamarkaðnum til að bjarga lýðræðinu, þá verðum við að horfast í augu við það, og það sem er mikilvægara; efnaðasta og valdamesta fólk heims og í þessu landi þarf að gera sér grein fyrir því að það sé möguleiki. Það er enginn efnahagslegur stöðugleiki án lýðræðislegs stöðugleika. Ef þú sviptir okkur lýðræðislegum stöðugleika þá tökum við í burtu efnahagslega stöðugleikann.“ Eftir nokkuð hlé hefur Trump aftur gefið í tal um stolnar kosningar, sem sumir segja ætlað að leggja grunninn að réttlætingu fyrir afskiptum af þingkosningunum í haust. Demókratar eru vongóðir um að ná aftur fulltrúadeildinni í kosningunum, sem myndi gera Trump erfiðara fyrir. Demókratar hefðu þá aftur dagskrárvaldið og gætu dregið menn fyrir þingnefndir til að fá svör við ákvörðunum stjórnvalda. Gallego hefur verið nokkuð áberandi í umræðunni vestanhafs enda beinskeyttur og berorður. Hann var til að mynda meðal þeirra þingmanna sem vildu grípa til lagasetningar til að koma í veg fyrir að Trump tæki Grænland með valdi. Nafn hans er þannig farið að bera á góma þegar rætt er um forsetakosningarnar árið 2028, ýmist sem forsetaframbjóðanda eða varaforsetaefnis.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2028 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira