Hvíl í friði, Bifrastarandinn Selma Klara Gunnarsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 10:32 Ákall til stjórnar Háskólans á Bifröst vegna óviðunandi stöðu nemenda Virðulega stjórn Háskólans á Bifröst, Ég rita þetta bréf sem nemandi við Háskólann á Bifröst og þar með sem einn þeirra sem eiga ríkra hagsmuna að gæta í starfsemi hans. Erindinu er ætlað að koma á framfæri alvarlegum áhyggjum af þeirri atburðarás sem átt hefur sér stað undanfarnar vikur. Sem aðili sem ber hag skólans fyrir brjósti tel ég að upplýsingagjöf til nemenda hafi verið verulega áfátt og að sú óvissa sem nú ríkir um stjórnarhætti sé farin að hafa áþreifanleg áhrif á viðhorf nemenda til skólans og framtíðar þeirra innan hans. Innan nemendahópsins ríkir nú mikill óróleiki. Margir hafa verulegar áhyggjur af námi sínu, námsframvindu og ekki síst virði háskólagráðu sinnar, en það óöryggi tengist beint þeim skaða sem orðspor skólans hefur hlotið í kjölfar nýlegra atburða. Staðan er orðin það alvarleg að rætt er af vaxandi þunga um úrsagnir og flutning í aðra skóla. Í siðareglum Háskólans á Bifröst segir skýrum orðum: „Þeir sem aðild eiga að háskólasamfélaginu standa vörð um heiður skólans og leitast við að haga störfum sínum þannig að það styrki orðspor hans. Háskólasamfélagið leggst á eitt um að skólinn sinni hlutverki sínu sem best og starfi í anda þessara siðareglna. Nemendur skólans og starfsfólk hans geta óhindrað sett fram gagnrýni á stefnu skólans og starfshætti hans og leggja sig fram um að efla frjáls skoðanaskipti innan skólans og í samfélaginu. Í störfum sínum og námi huga Bifrestingar að ábyrgð sinni gagnvart samfélagi, umhverfi og náttúru, sýna hver öðrum virðingu og vinna saman af heilindum“ Því miður virðist raunin önnur um þessar mundir þar sem starfað er þvert á anda þessara reglna. Í ljósi þess að vantraustsyfirlýsing liggur fyrir frá FAB, félagi akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst, tel ég óhjákvæmilegt að spyrja hvort stjórnin forgangsraði hagsmunum einstaklings ofar velferð stofnunarinnar í heild. Að lýsa ítrekað yfir stuðningi við rektor á sama tíma og óstöðugleiki eykst samrýmist illa þeirri ábyrgð sem stjórnin ber gagnvart öllum hagaðilum. Í stað þess að lægja öldurnar virðast ákvarðanir síðustu vikna fremur hafa aukið á krísuna og skaðað orðspor skólans enn frekar. Einhliða og takmörkuð upplýsingagjöf til nemenda hefur í för með sér að traust til stofnunarinnar fer dvínandi. Þá vil ég koma því skýrt á framfæri að ég, ásamt fjölmörgum öðrum grunnnemum, hyggst ekki hefja meistaranám við skólann á meðan núverandi ástand varir og núverandi rektor starfar þar. Sú ákvörðun byggir á brostnu trausti og þeirri sannfæringu að gæði námsins og virði gráðunnar séu í hættu. Þá sérstaklega má nefna þann augljósa tvískinnung í nálgun skólans er varðar gervigreind. Nemendum er gert að nýta gervigreind einungis til stuðnings og jafnframt er varað við því að treysta henni eða taka mark á öllu sem hún skilar. Þessi afstaða byggir á þeirri réttmætu forsendu að gervigreind skorti dómgreind, samhengi og skilning á raunverulegu framlagi einstaklinga. Í því ljósi er sérstakt, ef ekki beinlínis þversagnakennt, að ætla að tæknilausnir geti á nokkurn hátt metið framlag sérfræðinga hvað varðar ritrýndar fræðigreinar. Slíkt mat er og verður alltaf á færi þeirra sem koma að verkefninu sjálfu. Engin gervigreind hefur innsýn í vinnuferli, samvinnu, ábyrgðartöku eða faglegt framlag einstakra þátttakenda. Ef nemendum er sagt að þeir megi ekki treysta tækninni í blindni, þá hlýtur sama viðmið að gilda um stofnunina sjálfa. Ég tel jafnframt ástæðu til að gera alvarlega athugasemd við orðræðu stjórnar í samskiptum við nemendur og hvernig hún hefur breyst á skömmum tíma. Upphaflega var lýst yfir fullu trausti til rektors til að leiða sáttaferli með aðkomu óháðs aðila. Nú hefur orðalagið færst yfir í að lýsa yfir trausti í garð rektors til að „annast daglegan rekstur“ skólans, á meðan viðbrögð við vantrauststillögu voru lítil sem engin er nú hafið sáttaferli sem er alfarið lagt í hendur stjórnar. Þessi breyting á áherslum vekur spurningar um hvort stjórnin sé að hverfa frá fyrri fullyrðingum án þess að gera nemendum grein fyrir forsendum þess. Slíkt skapar ekki traust heldur eykur óvissu og styrkir þá tilfinningu að verið sé að laga orðræðuna að aðstæðum hverju sinni fremur en að axla raunverulega ábyrgð. Að sama skapi tel ég að orðalag á borð við „ógnarvænt um háskólann“ og vísanir í sameiginlega baráttu í rúm hundrað ár bæði óheppilegar og villandi í þessu samhengi. Slík orðræða virkar sem tilfinningaleg samstöðuyfirlýsing frekar en ábyrg og gagnsæ viðbrögð við stjórnsýslulegri krísu. Þegar traust er rofið og alvarlegar ásakanir liggja fyrir, kallar staðan ekki á rómantíska frásögn um sögulega samstöðu heldur á skýr svör, ábyrgð og raunverulegar aðgerðir. Í stað þess að sameina háskólasamfélagið virðist þessi nálgun ýta undir fjarlægð milli stjórnar og nemenda, þar sem alvarlegum áhyggjum er svarað með yfirlýsingum í stað efnislegrar upplýsingagjafar. Stjórn sem svarar krísu með orðskrúði í stað ábyrgðar má ekki undrast að traustið sé horfið. Viðbrögð rektors við niðurstöðu siðanefndar í dag vekja jafnframt alvarlegar spurningar um dómgreind, ábyrgð og raunveruleikaskyn. Með því að lýsa niðurstöðunni sem „bestu mögulegu niðurstöðu“ og halda því fram að „allir vinni þegar enginn tapar“ er horft fram hjá þeirri staðreynd að vantrausti hefur þegar verið lýst yfir. Í slíku samhengi er augljóst að ekki vinna allir þótt enginn sé talinn brotlegur, því rektor hefur í þessu ferli glatað trausti sem er grundvallarforsenda þess að gegna forystuhlutverki. Slík framsetning dregur úr alvarleika málsins og gerir lítið úr þeim skaða sem orðið hefur, bæði fyrir þá sem málið hefur snert og fyrir stofnunina í heild. Ég biðla til stjórnar skólans að sýna ábyrgð og endurskoða afstöðu sína. Það er lágmarkskrafa að hagur nemenda og kennara sé settur í forgrunn og að gripið sé til raunverulegra ráðstafana til að stöðva þá þróun sem nú á sér stað. Ég óska þess jafnframt að nemendur séu upplýstir af hreinskilni um stöðu mála og hvaða skref verði tekin til að endurreisa faglegt vinnu- og lærdómsumhverfi og traust á ný. Ég óska eftir formlegu, skriflegu svari frá stjórn Háskólans á Bifröst innan viku frá dagsetningu þessa bréfs, þar sem brugðist er við ofangreindum atriðum á málefnalegan hátt. Það er einlæg ósk mín, og fjölmargra annarra, að Bifrastarandinn fái að lifa um ókomna tíð. Virðingarfyllst, Höfundur er hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Deilur í Háskólanum á Bifröst Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson Skoðun