Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára? Elías Blöndal Guðjónsson skrifar 8. febrúar 2026 23:00 Þegar rökþrot blasa við er stutt í skáldskapinn og yfirlætið. Nýjasta útspil tveggja lækna í baráttu þeirra fyrir ríkiseinokun er með eindæmum pínlegt dæmi um slíkt. Í grein hér á Vísi er gripið til örþrifaráða með því að spyrja í yfirlætisfullum tón: „Má bjóða þér meiri háþrýsting, frú Sigríður?“ Með þessu er dregin upp súrrealísk mynd af íslenskum almenningi sem hópi óvita – persónugerðum í ráðvilltri konu – sem þurfi ríkisstarfsmann til að halda í höndina á sér, annars endi allt með ósköpum. Mýtan um neyslusprenginguna jarðsungin Læknarnir halda því fram að ef ríkið sleppi höndinni af „frú Sigríði“ muni hún missa stjórn á sér. Þeir spá neyslusprengingu. En við þurfum ekki kristalskúlu læknanna því raunveruleikinn hefur þegar kveðið upp sinn dóm og fyrir liggja áþreifanleg gögn - nokkuð sem læknarnir vilja ekki horfast í augu við. Frá árinu 2021 hefur aðgengi að áfengi aukist á Íslandi í gegnum netverslanir og heimsendingar. Samkvæmt kenningum læknanna og ÁTVR hefði þetta átt að leiða til gríðarlegrar neysluaukningar með tilheyrandi harmleik. Raunveruleikinn er annar. Áfengisneysla Íslendinga hefur dregist saman um 13,4% á milli áranna 2021 og 2024. Læknarnir horfa fram hjá þessu og halda fram ósannindum. Þeir umgangast vísindin eins og hlaðborð, velja á diskinn það sem hentar þeirra pólitísku heimssýn en láta óþægilegar staðreyndir ósnertar, eins og ég rakti ítarlega ífyrri grein minni. Læknar þessir hafa látið það ógert að svara þessari grein minni með málefnalegum hætti heldur láta duga að ausa upp dylgjum og órökstuddum fullyrðingum til að dreifa athyglinni frá því að vísindin eru ekki með þeim í liði. Þjóðin er að drekka minna þrátt fyrir aukið frelsi. Þessi staðreynd ein og sér grefur undan öllum málflutningi um að einokun sé forsenda lýðheilsu. Kenningin á sér ekki stoð í raunveruleikanum. 100 milljarða blekking Í örvæntingu kasta læknarnir svo fram stjarnfræðilegum tölum til að reyna að rugla fólk í ríminu. Læknarnir endurflytja málflutning heilbrigðisráðherra og OECD um að áfengisneysla kosti skattborgara „ríflega 100 milljarða króna árlega“ og að sá kostnaður „aukist í takt við aukna neyslu“. Þessi bókhaldsbrella er þvættingur og lýsir yfirgripsmikilli vanþekkingu. Í fyrsta lagi, ef kostnaðurinn er 100 milljarðar í dag, þá er sá kostnaður tilkominn í skjóli núverandi einokunar. Hvernig getur ríkisrekstur verið „mikilvægasta forvörnin“ þegar talsmenn hans viðurkenna sjálfir að kostnaðurinn sé stjarnfræðilegur undir þeirra stjórn? Þetta er sjálfsmark. Í öðru lagi þá er fullyrðingin um að kostnaðurinn „aukist í takt við aukna neyslu“ byggð á sandi. Eins og nýjustu gögn sýna svart á hvítu hefur neysla dregist saman um 13,4%. Það hefur engin neysluaukning átt sér stað og hér slitna því rökin frá þræðinum. Að halda því fram að kostnaður muni rjúka upp vegna neysluaukningar sem er ekki til staðar er ný lægð í gervivísindum. Algjör vanþekking Það sem vekur þó mesta furðu er fullyrðing læknanna um að ríkiseinokun sé forsenda þess að „stýra útsöluverði“. Þetta afhjúpar vanþekkingu á málaflokknum. ÁTVR stýrir ekki verði. Það er mýta sem embættismenn og einhverjir læknar virðast trúa. Heildsalar(einkarekin fyrirtæki) ákvarða grunnverð vörunnar. ÁTVR leggur einfaldlega lögbundna álagningu ofan á verð heildsalans. Þessi álagning ákvarðast af Alþingi en ekki forstjóra ÁTVR. Ríkið stýrir verðlagi í gegnum skatta (áfengisgjald og virðisaukaskatt) sem ákvarðast af Alþingi en ekki verslunarstjórum ÁTVR. Ríkið getur lagt á sömu skatta og gjöld í einkarekinni verslun og í ríkisbúð. Að halda því fram að ríkið þurfi að eiga húsnæðið og búðarkassann til að geta skattlagt vöruna er fáránlegt. Forvarnir án ríkisrekstrar Það er því miður útbreiddur misskilningur að ríkisrekstur sé forsenda öflugra forvarna. Nýjustu ritrýndu rannsóknir sýna að fjöldi sölustaða hefur afar takmörkuð áhrif þegar markaðurinn er mettaður. Þar að auki er ekkert sem bendir til þess að sölustöðum muni fjölga þegar einokunarverslunin verður lögð niður því hvergi í heiminum eru fleiri vínbúðir miðað við höfðatölu en á Íslandi. Hið opinbera þarf ekki að standa í verslunarrekstri til að setja strangar reglur eða banna auglýsingar, til þess hefur ríkið lagasetningarvald. Nútíminn býður svo upp á mun öflugra eftirlit en áður. Í netverslun tryggja rafræn skilríki að aldurstakmörkunum sé framfylgt án undantekninga. Slíkt kerfi er mun öruggara en hið fallvalta og huglæga sjónmat starfsmanna í ÁTVR. Þá er rétt að leiðrétta þann misskilning að ÁTVR sinni forvörnum. Stofnunin hefur beinlínis það markmið að selja vörur og eyðir hún hundruðum milljóna í markaðssetningu og ýmis konar útgáfu á ári hverju. Það er hróplegt óréttlæti gagnvart íþrótta- og tómstundahreyfingunni að eigna ríkisbúðinni árangur í forvörnum, því þar fer hið raunverulega og ómetanlega starf fram – ekki með útgáfu á kokteilabók ríkisins. Aðild að lífeyrissjóði læknar ekki háþrýsting Læknarnir virðast ekki skilja þá staðreynd að etanól-sameindin fer ekki í manngreinarálit eftir söluaðila. Það er enginn munur á lífeðlisfræðilegum áhrifum flösku úr ÁTVR og flösku úr sérverslun. Ríkið selur ekki „öruggara áfengi“. Röksemdafærslan fer svo út af sporinu þegar því er haldið fram að breytt rekstrarform valdi sjúkdómum. Aðild afgreiðslumanns að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins hefur engin áhrif á blóðþrýsting viðskiptavinarins, heldur er það innihald flöskunnar. Dulbúin forræðishyggja Það er verulegt áhyggjuefni að sjá sprenglært fólk, sem kennir sig við gagnreynda læknisfræði, láta tilfinningar sínar hlaupa með sig í gönur þegar kemur að þessum málaflokki. Ég hvet lækna til að halda sig við það sem þeir kunna best – að sinna sjúklingum – en eftirláta öðrum að skipuleggja smásölu í landinu. Að beita sjúkdómum eins og háþrýstingi og krabbameini sem rökstuðningi fyrir ríkisrekstri er ódýrt bragð og í raun ósmekklegt. Ef ríkið á að einoka sölu á öllu sem getur valdið heilsubresti, hvar endar það þá? Ætlum við að setja á fót Ríkisbakarí og Ríkisvegasjoppu til að vernda „Frú Sigríði“ gegn sykri, unnum matvörum og offitu? Við lifum á upplýsingaöld og Íslendingar eru fullfærir um að bera ábyrgð á eigin heilsu. Sú krafa að ríkið eitt megi selja vöru til að „vernda“ okkur er ekki byggð á vísindum heldur forræðishyggju dulbúinni sem umhyggju. Höfundur er annar eigenda Santé Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Netverslun með áfengi Elías Blöndal Guðjónsson Mest lesið Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar