Skoðun

Um 300 börn ,,rænd“ á ári hverju

Jón Pétur Zimsen skrifar

Gera foreldrar sér grein fyrir að einungis um 2% íslenskra nemenda ná efstu hæfniþrepum í náttúruvísindum samkvæmt PISA 2022? Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið 8–10%.

Það þýðir að á Íslandi eru um 100 börn í hverjum árgangi með afburðahæfni í vísindum. Hlutfallslega ættu þau að vera um 400.

Því vantar um 300 börn á ári í hóp þeirra sem skara fram úr.

Auðvitað eru niðurstöður PISA ekki einn allsherjardómur en niðurstöður Íslands eru alger áfellisdómur.

Hvað þýðir að vera á efstu hæfniþrepum?

Þessir 15 ára nemendur geta til dæmis:

unnið úr flóknum og óljósum upplýsingum,

metið áreiðanleika gagna,

dregið sjálfstæðar og gagnrýnar ályktanir,

beitt þekkingu í nýjum og ókunnugum aðstæðum.

Þetta eru nemendurnir sem síðar eru líklegri til að:

leiða rannsóknir,

þróa nýja tækni,

skapa nýja þekkingu,

og draga nýsköpunarvagninn.

Hver ber ábyrgð á því að um 300 nemendur eru ,,rændir“ á ári hverju þessari afburðarhæfni? Ekki heyrist múkk frá þeim sem völdin hafa, stýra kerfinu og ákveða hvaða leiðir skulu farnar. Þögnin er ærandi.

OECD hefur ítrekað bent á að sterk tengsl séu milli menntunar og langtímaframleiðni þjóða og bendir á að hætta sé á að minnsta kosti 5% samdrætti hvað framleiðni varðar eða um 250 milljarða árlega ef fram heldur sem horfir. Þjóðir sem ná ekki að rækta hæfileika sína dragast aftur úr í verðmætasköpun og samkeppnishæfni.

Hvers vegna er staðan svona þar sem við höfum allar forsendur til að vera með eitt besta menntakerfi í heimi?

Jöfnun niður á við er ekki hægt að réttlæta í nafni jöfnuðar.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×