ÍR - Þór Þ. | Þórsarar sóttu gríðarmikilvægan sigur

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Dachon Burke er mættur í Þorlákshöfn frá Bandaríkjunum.
Dachon Burke er mættur í Þorlákshöfn frá Bandaríkjunum. Hulda Margrét

Þór Þorlákshöfn sótti gríðarmikilvægan 75-78 sigur gegn ÍR í Skógarseli í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta.

Þórsarar eru enn í mikilli fallhættu en tókst með þessum sigri að skilja Ármann og ÍA eftir í fallsætunum tveimur. ÍA tapaði á sama tíma gegn Val á Hlíðarenda en Ármann á leik til góða gegn Tindastóli á morgun. 

Gestirnir frá Þorlákshöfn unnu sér upp góða forystu í fyrri hálfleik en misstu hana úr hendi sér í seinni hálfleik. Heimamönnum tókst hins vegar aldrei að stíga skrefið sem þeir þurftu til að vinna leikinn og Þór slapp að lokum með þriggja stiga sigur.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar…

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira