Uppgjörið: Valur - ÍA 102-85 | Valsmenn aftur á sigurbraut Andri Már Eggertsson skrifar 12. febrúar 2026 22:07 ÍR - Valur Bónus deild karla 2025 - 2026 körfubolti VÍSIR/VILHELM Valur vann sautján stiga sigur á ÍA 102-85. Staðan var jöfn í hálfleik en um miðjan þriðja leikhluta fundu heimamenn annan gír og litu aldrei um öxl. Þetta var níunda tapa Skagamanna í röð sem eru á botni deildarinnar. Gojko Zudzum var mættur aftur í leikmannahóp ÍA eftir að hafa verið fjarverandi vegna meiðsla síðan í byrjun desember á síðasta ári. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en þegar líða tók á fyrsta leikhluta gerðu heimamenn sjö stig í röð og komust í bílstjórasætið. Valsmenn voru fjórum stigum yfir eftir fyrsta leikhluta 21-17. Annar leikhluti fór rólega af stað. Bæði lið voru í vandræðum með að skora og hvorugu liðinu tókst að grípa augnablikið. Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA, tók leikhlé í stöðunni 27-25. Valsmenn þurftu einnig á þessu leikhléi að halda og nýttu tímann betur. Heimamenn gripu augnablikið og svöruðu með 15-4 kafla. Skagamenn bitu frá sér undir lok fyrri hálfleiks og gerðu síðustu tíu stigin. Staðan var jöfn í hálfleik 45-45. Gestirnir frá Akranesi hömruðu járnið á meðan það var heitt og gerðu fyrstu sjö stigin í seinni hálfleik. Lazar Nikolic endaði síðan 17-0 áhlaup ÍA með körfu og við það vöknuðu Valsarar sem voru níu stigum yfir þegar haldið var í síðustu lotu. Skagamenn ógnuðu aldrei forskoti Vals að neinu viti og heimamenn unnu að lokum. Atvik leiksins Frank Booker klikkaði á þriggja stiga skoti en hljóp strax á eftir boltanum og náði honum í loftinu og kastaði honum í Skagamann og sótti innkast. Á þessum tíma í fjórða leikhluta var allt með Valsmönnum. Stjörnur og skúrkar Kristófer Acox, leikmaður Vals, sneri aftur eftir meiðsli og var með tvöfalda tvennu. Kristófer gerði 14 stig og tók 13 fráköst. Igor Maric, leikmaður Vals, spilaði sinn annan leik fyrir félagið í kvöld og gerði 14 stig á fimmtán mínútum. Skagamenn fengu lítið sem ekkert framlag af bekknum. Varamenn ÍA gerðu samtals fimm stig á meðan varamenn Vals gerðu tuttugu og sjö stig. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson og Einar Valur Gunnarsson. Tríóið var með allt upp á tíu í kvöld og það var ekki við neinu að kvarta og þeir geta verið sáttir með sína frammistöðu. Stemning og umgjörð Stemningin var fín í N1-höllinni. Góður hópur drengja af Skaganum létu sjá sig og voru vel merktir sínu liði. Í hálfleik áttu ungir iðkendur Vals sviðið og stilltu upp í tvö lið og tóku körfuboltaleik sín á milli. Darryl Morsell: Sóknarfráköstin fóru illa með okkur Darryl Morsell, leikmaður ÍA, var svekktur eftir tap kvöldsins. „Við byrjuðum seinni hálfleik vel og komumst sjö stigum yfir en þá kom svar frá þeim og þeir lokuðu vörninni. Sóknarlega fengu þeir mikið af sóknarfráköstum sem fór illa með okkur,“ sagði Darryl eftir leik. Darryl var ánægður með fyrri hálfleik ÍA þar sem gestirnir gerðu síðustu tíu stigin og byrjuðu á að gera fyrstu sjö stigin í síðari hálfleik. „Við fundum taktinn og vorum að hitta vel en því miður ver ekki mikill stöðugleiki í því.“ Aðspurður út í eigin frammistöðu var Darryl svekktur með sjálfan sig í síðari hálfleik þar sem hann gerði aðeins sex stig. „Ég verð að vera grimmari. Ég ætla ekki að segja að þeir hafi breytt einhverju þetta var bara mér að kenna,“ sagði Darryl að lokum. Bónus-deild karla Valur ÍA