Valur

Valur

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Val frá Reykjavík.

Fréttamynd

David James þjálfar mark­verði Vals

David James, einn leikjahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og fyrrum markvörður ÍBV, er staddur hér á landi næstu daga til að þjálfa markverði Vals. Þar með gerir hann félaga sínum Hermanni Hreiðarssyni greiða.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“

Kristófer Acox átti stórleik á móti uppeldisfélaginu sínu þegar Kristófer og félagar í Val unnu framlengdan leik á móti KR í 19. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta. Körfuboltakvöld tók sérstaklega fyrir frammistöðu leikmannsins sem íslenski landsliðsþjálfarinn telur sig ekki hafa not fyrir.

Körfubolti
Fréttamynd

„Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“

„Þá förum við að gefa ódýr mörk en við höfðum verið að spila frábæra vörn og svo var sóknarleikurinn hjá okkur orðin dálítið sóló. Það vantaði bara upp á skynsemi. Valur var skynsamari en við og unnu þess vegna,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, eftir tap gegn Val í úrslitum Powerade bikarsins.

Handbolti
Fréttamynd

„Al­gjör rússibani“

„Tilfinningin er geggjuð. Þetta var algjör rússíbani þessi leikur eins og við var að búast,“ sagði kampakátur Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, eftir sigur sinna kvenna á Haukum í bikarúrslitum í dag. Lokatölur 19-23 í sveiflukenndum leik.

Handbolti
Fréttamynd

„Af hverju ekki?“

Jónatan Þór Magnús­son, þjálfari KA/Þórs segir sitt lið mæta pressu­laust til leiks gegn besta liði Ís­lands um þessar mundir, Val, í undanúr­slitum bikar­keppninnar í hand­bolta í kvöld. Eftir­vænting er ríkjandi hjá norðan­konum fyrir leik kvöldsins og trúin á sigri til staðar.

Handbolti
Fréttamynd

Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna

Lið Vals situr eitt á toppi Olís deildarinnar með tveggja stiga forskot eftir öruggan sigur liðsins gegn Stjörnunni í dag. Lokatölur 30-20, tíu marka sigur Vals. 

Handbolti
Fréttamynd

Frank Booker eldri látinn

Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun.

Körfubolti