Hefja aftur viðræður við Paramount Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 14:27 Stjórn Warner Bros. Discovery hefur samþykkt kauptilboð frá Netflix en hefur nú leyfi til að ræða nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance. Þeim viðræðum á að vera lokið 23. febrúar. AP/Jae C. Hong Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery segja viðræður við eigendur Paramount Skydance um yfirtöku hafnar á nýjan leik. Það er eftir að eigendur Paramount hækkuðu kauptilboð sitt en fyrirtækið hefur staðið í baráttu við Netflix um að kaupa WBD eða hluta félagsins.
Stjórn WBD lýsti því yfir undir lok síðasta árs að til stæði að skipta félaginu upp í tvo hluta. Upptökuver fyrir bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti og HBO Max streymisveita félagsins yrðu í einum og sjónvarpsstöðvar eins og Discovery, CNN, TNT og fleiri yrðu reknar áfram í sér félagi. Netflix gerði tilboð í upptökuverin og HBO Max en ekki í sjónvarpsstöðvarnar. Tilboðið hljómaði upp á 72 milljarða dala og var það samþykkt af stjórninni. Það samsvarar um 8,8 billjónum króna (tólf núll) á gengi dagsins í dag. Í tilkynningu frá stjórn WBD segir að forsvarsmenn Netflix hafi gefið stjórn WBD sjö daga til að ræða við Paramount um nýja tilboðið. Stjórnin er enn samþykk því að selja til Netflix en með þessum viðræðum næstu daga vill stjórnin útkljá málið að fullnustu. Forsvarsmenn Netflix telja að tilboð þeirra sé enn það hagkvæmasta fyrir eigendur WBD. Eigendur Paramount hafa gert fleiri tilboð í WBD og vilja þeir allan reksturinn, sjónvarpsstöðvarnar, upptökuverin og HBO Max. Paramount hafði reynt svokallaða fjandsamlega yfirtöku en í einföldu máli sagt felur slíkt í sér að fara fram hjá stjórn WBD og kaupa hlutabréf í félaginu beint af hluthöfum. Þannig gæti Paramount náð meirihluta í WBD og skipað sitt fólk í nýja stjórn. Þetta ferli er þó töluvert flókið og sagði stjórn WBD hluthöfum að hafna tilboðinu. Eins og áður segir hefur stjórnin þegar samþykkt kauptilboð frá Netflix og felur það meðal annars í sér að komi önnur tilboð hafi Netflix rétt til að jafna öll önnur tilboð. Nýjasta tilboð Paramount til hluthafa felur meðal annars í sér að greiða þá 2,8 milljarða dala sem það myndi kosta að rifta samkomulaginu við Netflix, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Þá segja heimildarmenn miðilsins að hluthafar í WBD búist við því að tilboð Paramount muni vera um 32 eða 33 dalir á hlut. Fyrra yfirtökutilboðið var um þrjátíu dalir á hlut. Forstjóri Paramount fundaði með Trump Forsvarsmenn Paramount Skydance telja sig í bestri stöðu til að fá samrunann samþykktan en fyrirtækið var nýlega myndað úr samruna fyrirtækjanna Paramount og Skydance, eftir að Paramount greiddi Trump bætur vegna viðtals fréttaskýringarþáttarins 60 mínútna við Harris í aðdraganda kosninganna. Þá er markaðsstaða Paramount verri en staða bæði Netflix og WBD. David Ellison, forstjóri Paramount og sonur auðjöfursins Larry Ellison, fundaði nýverið með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Nokkrum dögum síðar sagðist Trump ekki koma með nokkrum hætti að málinu. Hann hafði áður sagt að hann myndi taka virkan þátt í því að taka ákvörðun um það hvort yfirvöld Bandaríkjanna myndu samþykkja kaupin.
Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Donald Trump Netflix Streymisveitur Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Fleiri fréttir Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent