Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2026 13:55 Mark Zuckerberg hefur ítrekað þurft að svara spurningum þingmanna um meinta skaðsemi samfélagsmiðla á undanförnum árum. Í gær var hann í fyrsta sinn að bera vitni í dómsmáli. AP/Damian Dovarganes Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, bar í gær vitni í fyrsta sinn í dómsmáli þar sem fjallað er um ávanabindandi samfélagsmiðla og tækni. Réttarhöldin gætu haft mikil áhrif á rekstur samfélagsmiðla á næstu árum.
Meta á bæði Instagram og Facebook en virkir notendur fyrirtækisins eru fleiri en 3,5 milljarðar manna í heiminum. Foreldrar og alls konar hópar sem berjast fyrir auknum reglum á samfélagsmiðla hafa höfðað mál gegn fyrirtækjum eins og Meta, á þeim grunni að þau níðist á ungu fólki með því markvisst láta það ánetjast samfélagsmiðlum fyrirtækjanna. Það valdi börnum mikilli angist og heilsuvandamálum. Málið sem Zuckerberg bar vitni í í gær var höfðað af nú tuttugu ára konu en samkvæmt frétt AP-fréttaveitunnar segist hún hafa þjáðst mjög andlega vegna samfélagsmiðlanotkunar. Auk Meta hefur konan einnig höfðað mál gegn YouTube, sem er í eigu Alphabet og Google, og TikTok og Snap. Síðastnefndu fyrirtækin tvö hafa gert dómsátt við konuna en Meta stendur einnig í öðrum sambærilegum málaferlum í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Þessi tilteknu málaferli og önnur sem eru yfirstandandi munu líklega verða mjög áhrifamikil þar sem þau gætu lagt línurnar að fleiri málaferlum gegn samfélagsmiðlafyrirtækjum eða stöðvað slík málaferli. Á sama tíma eru stjórnvöld víða á Vesturlöndum að reyna að koma böndum á umrædd fyrirtæki og takmarka neikvæð áhrif þeirra. Ástralar hafa til að mynda sett aldurstakmarkanir á samfélagsmiðla og er verið að skoða svipaðar aðgerðir í fleiri ríkjum. Í frétt New York Times segir að árið 2024 hafi landlæknir Bandaríkjanna lagt til að samfélagsmiðlar yrðu merktir með einhverjum hætti, sem skaðlegir ungu fólki. Zuckerberg, sem stofnaði Facebook árið 2004 á heimavist í háskóla, hefur ítrekað verið kallaður til að svara spurningum þingmanna í Bandaríkjunum. Á einum nefndarfundi árið 2024 var hann látinn standa upp og biðja foreldra í salnum afsökunar. Þeir foreldrar segja samfélagsmiðlanotkun hafa leitt til dauða barna sinna. Þá hafa ríkissaksóknarar víða um Bandaríkin höfðað mál gegn Meta á margvíslegum grunni. Þessi réttarhöld hafa meðal annars varpað ljósi á það að forsvarsmenn Meta hafa ítrekað haldið því fram að samfélagsmiðlar fyrirtækisins skaði ekki ungt fólk, á sama tíma og þeir hafa hafnað ákalli starfsmanna um að bæta varnargarða kringum unga notendur og ráða fleira starfsfólk til að vakta samfélagsmiðlana. Telur ekki búið að sanna að samfélagsmiðlar séu skaðvaldur Í dómsal í Los Angeles í gær sagðist Zuckerberg, sem stofnaði Facebook á heimavist í háskóla árið 2004, enn þeirrar skoðunar að ekki væri búið að sanna það að samfélagsmiðlanotkun valdi börnum og ungu fólki andlegum skaða. Þá sagði hann einnig að skynsamir forsvarsmenn fyrirtækja ættu að reyna að aðstoða viðskiptavini sem nýta sér þjónustu þeirra. Þegar Zuckerberg var spurður hvort fólk væri líklegra til að nota hluti oftar ef þeir væru ávanabindandi, sagðist hann telja að það ætti ekki við í þessu tilfelli. Lögmaður konunnar sem höfðaði málið spurði Zuckerberg sérstaklega út í ummæli hans á þingfundi þar sem hann sagði að starfsmönnum Instagram hefði ekki verið gefið það markmið að auka tímann sem fólk ver á samfélagsmiðlinum. Honum var bent á skjöl sem litið hafa dagsins ljós og benda til þess að hann hefði sagt þingmönnum ósatt. Zuckerberg sagði að áður hefðu verið sett markmið um tíma fólks á samfélagsmiðlum en þau markmið hefðu verið lögð til hliðar. Þess í stað hefði verið lögð áhersla á að gera samfélagsmiðla Meta nytsamlega fyrir fólk. Ef fólk teldi sig hagnast á einhverju og það væri nytsamlegt væri fólk líklegra til að nota það oftar. Deilt um aldur og filtera Samkvæmt AP var miklum tíma varið í að spyrja Zuckerberg út í það hvernig fyrirtæki hans gengur úr skugga um aldur notenda. Eftir nokkurn tíma hafi forstjórinn sagt að hann skildi ekki af hverju þetta þætti flókið. Hann sagði notendaskilmála Meta meina fólki yngra en þrettán ára að nota samfélagsmiðla fyrirtækisins og reynt væri að greina það þegar börn segðu ósatt um aldur við skráningu. Hann var einnig spurður ítarlega út í svokallaða „filtera“ á Instagram þar sem fólk getur breytt útliti sínu og sagðist Zuckerberg ekki þeirrar skoðunar að slíkt valdi skaða eða setti of háa standarda fyrir ungt fólk. Forstjórinn sagðist hafa lagt nokkuð takmarkaðar línur þegar kemur að því að loka á tól eins og „filtera“ og að slíkar lokanir gætu táknað takmarkanir á tjáningarfrelsi fólks. Þá vísaði lögmaðurinn til utanaðkomandi sérfræðinga sem Meta leitaði til vegna þessara „filtera“ og mögulegra áhrifa þeirra á fólk. Hann benti á að allir átján sérfræðingar sem fyrirtækið leitaði til hafi lýst yfir áhyggjum af þeim. Þegar einn lögmanna Meta tók til máls sagði hann að fyrirtækið hefði ekki mótmælt því að konan sem höfðaði málið hefði átt við andleg vandamál að stríða. Því væri þó mótmælt að Instagram hefði spilað stóra rullu í þeim veikindum. Vísaði hann meðal annars til þess að gögn bentu til þess að hún hefði átt erfitt í gegnum árin og læknaskjöl sýndu fram á að samfélagsmiðlafíkn hefði ekki verið það helsta sem hún ræddi við lækna sína og sálfræðinga. Bæði lögmenn Meta og YouTube sögðu að hún hefði leitað til þeirra miðla til að reyna að komast undan vandamálum sínum. Lögmaður YouTube sagði einnig í upphafsræðu sinni að YouTube væri ekki samfélagsmiðill og myndbandaveitan væri með engum hætti hönnuð til að vera ávanabindandi.
Samfélagsmiðlar Meta Facebook Google TikTok Bandaríkin Geðheilbrigði Mest lesið Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Viðskipti innlent Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Viðskipti innlent Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent