Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 23:56 Til stendur að svipta Andrew erfðaréttinum að krúnunni þegar lögreglurannsókn lýkur. Andrew var handtekinn í gær er sleppt úr haldi lögreglu í gærkvöldi. EPA Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið.
Andrew var handtekinn á heimili sínu í gær vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Hann er grunaður um að hafa lekið trúnaðargögnum, meðal annars til barnaníðingsins Jeffrey Epstein, meðan hann starfaði sem sérstakur erindreki Bretlands. Guardian hefur eftir heimildum að til standi að leggja fram umrætt frumvarp eftir að lögreglurannsókninni lýkur. Breskir stjórnmálamenn hafa kallað eftir því að Andrew verði sviptur erfðaréttinum að krúnunni eftir að hann var handtekinn í gær. Andrew afsalaði sér öllum konunglegum titlum og heiðursmerkjum, þar á meðal hertogatitlinum, í október eftir að fjallað var um vinskap hans við Epstein og meintan kínverskan njósnara. Þrátt fyrir það er hann enn áttundi í erfðaröðinni að krúnunni, á eftir Vilhjálmi og Harry prinsum og börnum þeirra. Andrew er þannig ennþá í hópi meðlima konungsfjölskyldunnar sem gætu verið tilnefndir til að leysa Karl konung af hólmi ef hann veikist eða fer til útlanda. Samkvæmt umfjöllun Guardian yrði Andrew þó aldrei í reynd tilnefndur þar sem einungis starfandi meðlimir konungsfjölskyldunnar kæmu til greina. Til þess að Andrew verði sviptur þessum erfðarétti að fullu þarf breska þingið að samþykkja frumvarp auk þess sem samráð þyrfti að fara fram við önnur lönd og landsvæði sem tilheyra breska samveldinu. Samstaða virðist ríkja milli flokkanna á breska þinginu um hið fyrirhugaða frumvarp. Andrew Bowie, skuggaráðherra Íhaldsflokksins í málefnum Skotlands, segir þó að lykilmáli skipti hvort Andrew verði fundinn sekur um þau brot sem honum hefur verið gefið að sök.
Mál Andrésar prins Kóngafólk Bretland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira