„Ég er himinlifandi með úrslitin og baráttuandann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2026 22:33 Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, fagnar sigrinum með Casemiro í kvöld. Getty/ James Gill Michael Carrick er enn taplaus sem knattspyrnustjóri Manchester United eftir 1-0 útisigur á Everton í Bítlaborginni í kvöld. United komst upp í fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni og hefur unnið fimm af sex deildarleikjum sínum undir stjórn Carrick. „
Við þurftum að leggja mikið á okkur. Hrós til Everton fyrir að gera okkur erfitt fyrir, þeir létu okkur verjast mikið í eigin vítateig. Baráttuandinn sem við sýndum við að verja teiginn var í hæsta gæðaflokki. Að halda hreinu er frábært. Við getum spilað betur en þetta, en á sama tíma er ánægjulegt að koma á útivöll og vinna 1-0,“ sagði Michael Carrick í samtali við BBC Match of the Day. Benjamin Sesko var enn á ný hetjan eftir að hafa komið inn á sem varamaður. „Þetta var frábær afgreiðsla, þetta var miskunnarlaus afgreiðsla og mér líkar hvernig hann kláraði þetta af miklu sjálfstrausti. Frábær spilamennska hjá Matheus [Cunha] og Bryan [Mbeumo] við að leggja það upp, við höfum leikmenn til að spila í skyndisóknum. Ég er himinlifandi fyrir hönd Ben [Sesko] aftur, að koma inn á og gera gæfumuninn,“ sagði Carrick. „Matheus þurfti að verjast í seinni hálfleik og hann gerði það virkilega vel. Þetta var stórkostleg sending yfir vörnina [fyrir markið]. Við þurftum heildstæða liðsframmistöðu hvað varðar þrýstinginn sem Everton setti á okkur og strákarnir stóðu sig. Ef maður gerir það fær maður verðlaun því við erum með hættulega leikmenn,“ sagði Carrick. Um markvörðinn Senne Lammens sem hélt hreinu í kvöld sagði Carrick: „Hann varði nokkrum sinnum virkilega vel, hann virtist rólegur og yfirvegaður í erfiðu umhverfi. Margar hornspyrnur komu undir slána hjá honum, hann varð ekki órólegur, greip vel inn í og var með öruggar hendur. Hann var magnaður fyrir okkur í kvöld. „Ég er himinlifandi með úrslitin og baráttuandann, strákarnir lögðu sig alla fram og fórnuðu sér hver fyrir annan. Hvað úrslit varðar hefur þetta verið gott, en við eigum enn mikið inni,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Tengdar fréttir „Ég trúi á sjálfan mig“ Benjamin Sesko, framherji Manchester United, var enn á ný hetja síns liðs eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Sesko kom inn á móti Everton í kvöld og skoraði sigurmarkið nítján mínútum fyrir leikslok. 23. febrúar 2026 22:15 Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Manchester United er komið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Everton í baráttuleik á Hill Dickinson-leikvanginum í kvöld í lokaleik 27. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. 23. febrúar 2026 21:55 Mest lesið Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Öll lið lenda í þessu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Sjá meira
„Ég trúi á sjálfan mig“ Benjamin Sesko, framherji Manchester United, var enn á ný hetja síns liðs eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Sesko kom inn á móti Everton í kvöld og skoraði sigurmarkið nítján mínútum fyrir leikslok. 23. febrúar 2026 22:15
Carrick er enn ósigraður og Sesko aftur hetjan Manchester United er komið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 útisigur á Everton í baráttuleik á Hill Dickinson-leikvanginum í kvöld í lokaleik 27. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. 23. febrúar 2026 21:55