Strákarnir okkar finna vel fyrir þunna loftinu Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 11:30 Gylfi Þór Sigurðsson gæti bætt markametið sitt í kvöld þegar hann snýr aftur í íslenska landsliðið. KSÍ Íslenska karlalandsliðið í fótbolta þarf ekki bara að glíma við sterkt lið Mexíkó í nótt heldur einnig óvenjulegar aðstæður; þunnt loft og kannski svolítið þrúgandi andrúmsloft.
Íslenska liðið er nánast bara skipað leikmönnum úr Bestu deildinni á Íslandi, þar sem um er að ræða leik utan leikjaglugga FIFA, og að sama skapi er lið Mexíkóa skipað leikmönnum úr efstu deild þar í landi. Um er að ræða vináttulandsleik sem Mexíkóar nýta í undirbúningi sínum fyrir HM á heimavelli í sumar. Spila í 2.000 metra hæð Á vef KSÍ er bent á að leikurinn fari fram í 2.000 metra hæð yfir sjávarmáli, í borginni Queretaro. Íslenska liðið æfði á keppnisvellinum í gær við góðar aðstæður en á vef KSÍ segir þó að strákarnir okkar hafi fundið vel fyrir því á æfingum í vikunni hve þunnt loftið sé í svo mikilli hæð. Ofan á þetta bætist á vissan hátt þrúgandi andrúmsloft því á leiknum í kvöld verður gríðarlega mikil öryggisgæsla, í ljósi óeirðanna sem brutust út í Mexíkó eftir að herinn skaut glæpaforingjann Nemesio Oseguera Cervantes, eða El Mencho, til bana á sunnudaginn. Engu að síður verður fullur leikvangur af fólki en uppselt er á leikinn og engin ákvörðun verið tekin um að spila fyrir luktum dyrum. Aldrei unnið Mexíkó Ísland freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur gegn Mexíkó en þetta verður sjötti leikurinn á milli þjóðanna, hjá A-landsliðum karla. Allir leikirnir hafa verið vináttuleikir á erlendri grundu. Fyrstu tveir fóru 0-0 en síðan hefur Mexíkó unnið þrjá í röð, síðast 2-1 í lok maí 2021, í Arlington í Texas. Leikur Íslands og Mexíkó hefst klukkan 2 í nótt að íslenskum tíma og er sýndur á Sýn Sport.
Besta deild karla Landslið karla í fótbolta Tengdar fréttir Ætla að sýna hve ráin hefur hækkað í Bestu deildinni Segja má að landsleikur Mexíkó og Íslands aðra nótt verði um leið uppgjör efstu deilda Mexíkó og Íslands, því þaðan koma nánast allir leikmenn landsliðanna að þessu sinni. 24. febrúar 2026 14:02 „Ef þú tækir burt vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegt“ Óeirðir í Mexíkó hafa sín áhrif á strákana okkar í fótboltalandsliðinu sem eru staddir þar í landi. Landsliðsþjálfarinn segir stöðuna súrrealíska en allt gangi sinn vanagang, þrátt fyrir aukna öryggisgæslu. Sem stendur á leikurinn að fara fram, en það gæti breyst. 24. febrúar 2026 08:49 Mest lesið Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Valencia - Barcelona | Hörkuleikur á Mestalla FH - Þór/KA | Kemst FH aftur á toppinn? Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira
Ætla að sýna hve ráin hefur hækkað í Bestu deildinni Segja má að landsleikur Mexíkó og Íslands aðra nótt verði um leið uppgjör efstu deilda Mexíkó og Íslands, því þaðan koma nánast allir leikmenn landsliðanna að þessu sinni. 24. febrúar 2026 14:02
„Ef þú tækir burt vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegt“ Óeirðir í Mexíkó hafa sín áhrif á strákana okkar í fótboltalandsliðinu sem eru staddir þar í landi. Landsliðsþjálfarinn segir stöðuna súrrealíska en allt gangi sinn vanagang, þrátt fyrir aukna öryggisgæslu. Sem stendur á leikurinn að fara fram, en það gæti breyst. 24. febrúar 2026 08:49