Innlent

Þotum Icelandair lent í Reykja­vík

Lovísa Arnardóttir, Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Agnar Már Másson skrifa
Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli.
Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm

Þó nokkrum þotum Icelandair í millilandaflugi hefur verið lent á þremur varaflugvöllum landsins vegna erfiðra veðurskilyrða á Keflavíkurflugvelli. Um tíma var töluverður fjöldi flugvéla í einskonar bið og hringsóluðu yfir Suðurlandið á meðan flugstjóri bíður leyfis til að lenda. 

„Veður er að hafa áhrif á Keflavíkurflugvelli, vindur og blautur snjór, sem þýðir að það tekur lengri tíma að ryðja og tryggja bremsuskilyrði, sem þýðir að vélar eru í bið og eru að koma inn hver af annarri,“ segir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia.

Hann segir Isavia ekki sjá um að beina neinni vél annað. Flugstjóri og flugfélag taki ákvörðun um það. 

Guðjón ítrekar að hægt sé að lenda á Keflavíkurflugvelli, það taki bara lengri tíma vegna þess að það tekur tíma að ryðja brautirnar.

Bíða þess að fá að lenda

Á Flightradar mátti sjá, til dæmis, að flugi Icelandair frá Glasgow sem átti að lenda á Keflavík verður lent á Reykjavíkurflugvelli. Flugvélunum hefur nú flestum verið beint á varaflugvellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.

Flugvélar í bið. Flightradar

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×