Fjarbúð á enda og eltir nú drauminn Aron Guðmundsson skrifar 27. febrúar 2026 09:32 Birta Georgsdóttir hefur verið að gera frábæra hluti í boltanum vísir / ívar Eftir að hafa unnið allt sem hægt var að vinna hér heima og verið valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar kom kallið úr atvinnumennskunni á Ítalíu. Birta Georgsdóttir stökk á tækifærið og gekk í raðir Genoa. Stuttu seinna var hún valin í íslenska landsliðið fyrir komandi risaverkefni liðsins.
Birta skrifaði undir tveggja ára samning við Genoa og skoraði í frumraun sinni með liðinu og er að venjast lífinu í atvinnumennskunni. „Þetta er alveg mikil breyting,“ segir Birta í samtali við íþróttadeild. „En á sama tíma finnst mér þetta mjög gaman. Maður er að taka skrefið. Fara í betra umhverfi. Spila á móti betri leikmönnum. Í betri deild. Það er líka mjög lærdómsríkt og góð reynsla fyrir mig. Að fá að taka þetta næsta skref og halda áfram að þróast sem leikmaður.“ „Maður var búinn að vinna Íslandsmeistaratitilinn, bikarmeistaratitilinn, komast áfram í Evrópu- og Meistaradeildinni. Endaði síðasta tímabil á að vera valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar. Mér fannst þetta, á þessum tímapunkti, vera gott skref fyrir mig til að halda áfram að þróast sem leikmaður.“ Og á Ítalíu hittir hún fyrir kærasta sinn, íslenska landsliðsmanninn Mikael Egil Ellertsson sem er einnig leikmaður Genoa. Mikael Egill í leik með GenoaVísir/Getty „Við höfum verið saman mjög lengi en höfum aldrei búið saman. Við höfum alltaf verið að spila fótbolta í sitt hvoru landinu. Nú er mjög gaman að búa saman og fá að spila bæði fótbolta í þessu umhverfi, á þessu gæðastigi og á sama staðnum. Ég get ekki kvartað.“ Valin í fyrsta sinn Birta var á dögunum valin í íslenska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum og það fyrir risastórt verkefni í undankeppni HM gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar og ríkjandi Evrópumeisturum Englands. „Það var mjög góð tilfinning að vita að ég hafi verið valin þó svo að ég hafi ekkert endilega verið að búast við því. En það fylgir þessu bara mjög góð tilfinning og er bara mikill heiður. Ég er alveg mjög spennt fyrir því að hitta hópinn og fá að vera hluti af þessu á móti þessum andstæðingum líka. Maður æfði aukalega þegar að maður var yngri. Allt fyrir svona stundir. Að vera verðlaunuð með því að vera valin í landsliðið, fá tækifærið til þess að halda erlendis og spila þar. Jú klárlega. Það er geggjað að hugsa til baka eftir alla vinnuna sem maður hefur lagt í þetta. Maður hefur lagt svo mikið á sig fyrir þessar stóru stundir og ég lít stolt til baka.“
Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira