Chelsea setti enskt met í taprekstri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2026 08:01 Það hefur verið mikill taprekstur á Chelsea undanfarið og nú er komið í ljós að félagið hefur sett nýtt enskt met. Getty/Sally Rawlins Chelsea er enn á ný í umræðunni vegna reksturs félagsins og nú hefur forráðamönnum félagsins tekist að setja nýtt met í taprekstri samkvæmt upplýsingum frá Knattspyrnusambandi Evrópu.
Samkvæmt UEFA tapaði stórliðið 355 milljónum punda, rúmlega 58 milljörðum króna, á árunum 2024 til 2025. Þetta er mesta fjárhagstap ensks félags nokkru sinni, að því er breska ríkisútvarpið greinir frá. Tölurnar koma úr nýrri fjárhagsskýrslu frá evrópska knattspyrnusambandinu UEFA. Í henni kemur fram, samkvæmt BBC, að ein af ástæðunum fyrir fjárhagsvandræðum Chelsea sé hár launakostnaður félagsins. How have Chelsea made biggest loss in English football history? https://t.co/NNObRjBe0M— BBC News (UK) (@BBCNews) February 26, 2026 Chelsea er sagt hafa eytt 388 milljónum punda í laun á tímabilinu 24/25, sem er aukning um 43 milljónir punda frá fyrra tímabili. Auk þess jókst rekstrarkostnaður félagsins á sama tímabili um rúmlega 80 milljónir punda. Á sama tíma og útgjöldin jukust víða drógust sumar tekjur saman. Til dæmis er sagt að félagið hafi haft fimm milljónum punda minni viðskiptatekjur 24/25 en tímabilið á undan. Chelsea þénaði einnig, samkvæmt breska ríkisútvarpinu, „talsvert minna“ en hin fimm ríkustu úrvalsdeildarfélögin þegar kemur að sölu á varningi og keppnistreyjum. Niðurstaðan hefði þó getað litið enn verr út fyrir Lundúnafélagið. Þökk sé þátttöku og sigri á HM félagsliða sumarið 2025 fengust 192 milljónir punda í útsendingartekjur – tala sem aðeins Manchester City nær að toppa. Önnur huggun fyrir Chelsea er að þrátt fyrir allt eru þeir ekki verstir í Evrópu, þótt þeir hafi slegið neikvætt enskt met. Árið 2021 var FC Barcelona skráð fyrir enn meira tapi. Katalónarnir eru sagðir hafa tapað 484 milljónum punda, um áttatíu milljörðum íslenskra króna.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira