Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2026 22:30 Kolbeinn Kristinsson hefur verið afar sigursæll og ætlar að stíga í hringinn heima á Íslandi í næsta mánuði. Instagram/@theicebearkristinsson Boðað hefur verið til mikillar hnefaleikaveislu í Gamla bíói þann 10. apríl þar sem keppa á í atvinnuhnefaleikum í fyrsta sinn hér á landi, eftir að hnefaleikar voru bannaðir um miðja síðustu öld.
Frá þessu greindi atvinnuhnefaleikakappinn Kolbeinn Kristinsson sem Íslendingar fá þar með loksins að sjá í keppni á heimavelli. Mótherji hans verður enginn aukvisi en samkvæmt mmafrettir.is er það Austurríkismaðurinn Sasa Milenkovic sem unnið hefur 12 af 13 bardögum sínum, þar af 11 þeirra með rothöggi. View this post on Instagram A post shared by Kolbeinn Kristinsson (@theicebearkristinsson) Valgerður Guðsteinsdóttir, Emin Kadri Eminsson, Norðmaðurinn Brage Lange, Hafþór Magnússon, Ísak Guðnason og Zalmai Jasur eru einnig á keppendalista kvöldsins, á síðu viðburðarins á tix.is, og ljóst að von er á erlendum keppinautum til landsins en þau mál skýrast betur á næstunni. Viðburðurinn sýnir að þolinmæði hnefaleikafólks virðist á þrotum gagnvart seinagangi á Alþingi við að breyta lögum um hnefaleika. Áhugamannahnefaleikar voru leyfðir árið 2002 og því hefur verið hægt að halda mót í þeim en enn standa lögin sem banna atvinnuhnefaleika, þó að frumvörp hafi verið lögð fram um að breyta því. Heimilt er að sekta fólk fyrir brot á lögunum. „Við erum sennilega eina þjóðin eftir í heiminum sem leyfir ekki að neinu leyti atvinnuhnefaleika. Í raun og veru er þetta bara út af gamalli mýtu og hræðsla við eitthvað sem fólk þekkir ekki,“ sagði Davíð Rúnar Bjarnason við Vísi árið 2024. Hann hefur haldið utan um Icebox-viðburðinn þar sem keppt er í áhugamannahnefaleikum. Davíð kemur ekki að skipulagningu þessa hnefaleikakvölds. Davíð segir í raun betra eftirlit með heilsu keppenda í atvinnumannahnefaleikum en hjá áhugamönnum. „Munurinn á áhugamönnum og atvinnumönnum er orðinn svo lítill. Það er búið að taka höfuðhlífarnar af hjá fullorðnum. Reglurnar [sem varða öryggi og heilsu] eru miklu strangari í atvinnuhnefaleikum. Þú þarft að fara í gegnum heilaskanna, mikið læknaeftirlit og eftir bardaga er mikið athugað,“ segir Davíð en samkvæmt alþjóðlegu regluverki þarf atvinnufólk í greininni að fara í myndatöku á höfði árlega. Hnefaleikakonan Erika Nótt Einarsdóttir er á meðal þeirra sem gagnrýnt hafa stjórnvöld harðlega vegna stöðunnar. Á yfirstandandi þingi liggur fyrir frumvarp frá stjórnarandstöðu sem myndi fella úr gildi lögin frá 1956, og setja ramma um bardagaíþróttir almennt, en það hefur enn ekki náð í gegn. Á meðan svo er virðist því löglegt að halda til dæmis keppniskvöld í MMA-bardagaíþróttum, eins og gert var með glæsibrag í Framheimilinu um síðustu helgi, og í áhugamannahnefaleikum en ólöglegt að keppa í atvinnuhnefaleikum og óljóst hvort og þá hvaða afleiðingar slíkt mót hefði í för með sér.
Box Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira