Mun leiða Fab Lab Reykjavík Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2026 07:57 Elín Birna Gunnarsdóttir. Silla Páls Elín Birna Gunnarsdóttir hefur tekið við starfi verkefnastjóra Fab Lab Reykjavíkur.
Í tilkynningu segir að hún muni stýra daglegum rekstri smiðjunnar og leiða þverfaglegt teymi hennar. „Elín Birna er með meistaragráðu í vélaverkfræði með áherslu á vöruþróun frá Chalmers University of Technology. Hún býr yfir víðtækri reynslu á þróun nýsköpunarlausna sérstaklega á sviði heilbrigðistækni. Síðast hjá Nox Medical þar sem hún vann að þróun tækja fyrir svefnrannsóknir. Þar tók hún meðal annars þátt í þróun og prófunum á frumgerðum, útgáfu hönnunar- og þróunargagna og uppfærslu á notendaprófanaferlum í samræmi við leiðbeiningar FDA. Áður starfaði Elín Birna hjá Oticon Medical í Svíþjóð við þróun heyrnartækja sem fest eru í bein, og hjá Dentsply Sirona Implants við hönnun og þróun tannskrúfa. Hún hefur einnig starfað hjá Volvo Powertrain þar sem hún vann að CAD‑hönnun á olíu- og kælikerfum,“ segir í tilkynningunni. Er ráðningin sögð vera liður í því að efla hlutverk smiðjunnar í íslensku nýsköpunarumhverfi, með áherslu á þróun frumgerða á fyrstu stigum og áframhaldandi uppbyggingu STEM-menntunar. Um Fab Lab segir að smiðjurnar séu meðal lykilinnviða nýsköpunar á Íslandi og starfi eftir alþjóðlegum gæðaviðmiðum Fab Foundation. „Fab Lab Reykjavík hefur á undanförnum árum stutt tugi nýsköpunarverkefna og gegnir mikilvægu hlutverki í þróun frumgerða. Smiðjan er samstarfsverkefni Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Reykjavíkurborgar, Mennta-, og barnamálaráðuneytis og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.“
Vistaskipti Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Sjá meira