Golf

Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luke Donald með Ryder-bikarinn sem hann hefur nú unnið tvö ár í röð sem fyrirliði evrópska úrvalsliðsins.
Luke Donald með Ryder-bikarinn sem hann hefur nú unnið tvö ár í röð sem fyrirliði evrópska úrvalsliðsins. Getty/Mateo Villalba

Englendingurinn Luke Donald verður fyrirliði evrópska Ryder-liðsins í golfi í þriðja sinn þegar Ryder-bikarinn fer næst fram á Adare Manor-golfvellinum á Írlandi í september 2027.

Ryder-bikarinn er golfkeppni karla sem haldin er annað hvert ár milli úrvalsliða frá Evrópu og Bandaríkjunum. Keppnisstaðirnir eru til skiptis í Evrópu og Bandaríkjunum. Evrópa hefur unnið undanfarin tvö ár og í sex skipti af síðustu átta. Staðan frá upphafi er 27-16 fyrir Bandaríkin en tvisvar hefur jafntefli verið niðurstaðan.

Nú þegar Donald hefur verið staðfestur sem leiðtogi evrópska liðsins þykir líklegt að það muni auka þrýstinginn á bandaríska PGA-sambandið að fá Tiger Woods til að leiða bandaríska liðið á móti Evrópuliðinu.

Woods, sem er fyrsti kostur til að taka við af Keegan Bradley, hefur verið óljós í svörum um stöðu sína sem fyrirliði. Fréttirnar af Donald munu auka tilfinningu Evrópu fyrir samfellu og samheldni á meðan óvissa ríkir um bandaríska liðið.

Donald hefur hlotið mikið lof fyrir nálgun sína í Róm og New York, þar sem Evrópa vann Ryder-bikarinn tvisvar í röð. Eftir dramatískan sigur á Bethpage-golfvellinum í Bandaríkjunum á síðasta ári var ljóst að leikmenn vildu að Englendingurinn héldi áfram í embætti.

Donald hefur þegar jafnað Tony Jacklin sem eini evrópski fyrirliðinn til að vinna bikarinn tvisvar í röð. Nú mun hann reyna að skrá sig á spjöld sögunnar með því að verða sá fyrsti til að sigra þrisvar í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×