Handbolti

„Það var engin hætta“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Elín Klara hlóð í tólf mörk í kvöld.
Elín Klara hlóð í tólf mörk í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Elín Klara Þorkelsdóttir átti sannkallaðan stórleik er íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann gríðarlega sterkan eins marks sigur gegn Svartfellingum í undankeppni EM í kvöld.

„Tilfinningin er ótrúlega góð og ég er virkilega stolt af liðinu,“ sagði Elín Klara, sem skoraði tólf mörk fyrir íslenska liðið í kvöld.

„Við mættum bara og gerðum þetta ótrúlega vel. Það er smá spennufall, ég viðurkenni það, en ég get ekki annað en verið ótrúlega stolt.“

Þrátt fyrir erfiða byrjun íslenska liðsins í leik kvöldsins gat hver sem vildi séð það að íslensku stelpurnar voru mættar til að berjast. Leikur íslenska liðsins einkenndist af mikilli orku, sem Svartfellingar réðu einfaldlega ekki við.

„Ég fann það bara strax í fyrri hálfleik að við vorum bara mættar og öll orkan var með okkur. Þó við höfum fengið á okkur nokkur áhlaup í seinni hálfleik þá vorum við alltaf að fara að klára þetta. Það var engin hætta, sko. Uppleggið okkar var að við ætluðum að spila grimma og sterka vörn, og við gerðum það, og hlaupa og hlaupa. Mér fannst við bara frekar ferskar.“

Þá segir hún að íslenska liðið hafi sýnt þroskamerki með leik sínum í kvöld með því að halda ró sinni þrátt fyrir áhlaup Svartfellinga.

„Nákvæmlega, og mér fannst það mjög vel gert. Við erum að þróa okkur sem lið og erum með kannski aðeins öðruvísi leikstíl. Við erum með litla leikmenn, en mér finnst við ná að vinna ótrúlega vel úr okkar styrkleikum og við gerðum það ótrúlega vel í dag.“

Næsti leikur íslenska liðsins er strax á sunnudaginn þegar Ísland mætir Svartfjallalandi í annað sinn. Sá leikur fer þó fram í Svartfjallalandi.

„Við þurfum bara að reyna að sofa eins mikið og við getum á þessu ferðalagi og tökum svo gott recovery í Svartfjallalandi. En við förum þarna út bara ferskar og fullar sjálfstrausts.“

„Þetta voru bara ótrúlega mikilvæg stig hér í kvöld og við þurfum bara að halda þessu áfram og byggja ofan á þetta,“ sagði Elín að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×