Handbolti

„Ó­geðs­lega gaman og ég er ó­geðs­lega á­nægð með allar“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Lovísa Thompson skilaði sínu hlutverki vel í kvöld.
Lovísa Thompson skilaði sínu hlutverki vel í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

„Þetta var ógeðslega gaman,“ sagði Lovísa Thompson eftir sterkan eins marks sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta gegn Svartfellingum í undankeppni EM í kvöld.

„Mér fannst við bara vera vel undirbúnar og mæta af fullum krafti. Við gerðum allt frekar vel, þannig já, þetta var bara ógeðslega gaman,“ bætti Lovísa við.

Íslenska liðið mætti með mikla og góða orku í leik kvöldsins. Sjálf þurfti Lovísa að leysa stöðu hægri skyttu í kvöld, en gerði svartfellsku vörninni oft og tíðum erfitt fyrir.

„Það kemur bara maður í manns stað og maður þarf bara að leysa það hlutverk sem maður fær hérna í landsliðinu og reyna að gera sitt besta. Ég er ánægð að það tókst ágætlega í dag. Ég er ánægð að mér tókst að spila svolítið upp á þær og skila mínu hlutverki, sem var að dreifa boltanum. Þannig þetta var bara ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar. Þetta var flott.“

Þá var Lovísa ánægð með það hvað íslenska liðið hélt orkustiginu háu allan leikinn. Sjálf hefði hún viljað aðeins meira.

„Mér fannst við meira að segja geta keyrt aðeins meira. Við erum alveg með frekar góða leikmenn sem eru fljótir á fótunum þannig við hefðum alveg mátt keyra aðeins hraðar. En það er kannski bara tækifæri til að bæta það í næsta leik.“

Næsti leikur Íslands er einmitt strax á sunnudaginn þegar liðið mætir Svartfellingum í annað sinn, þá úti í Svartfjallalandi. Lovísa viðurkennir að mögulega hafi verið gott að eiga inni smá orku eftir kvöldið fyrir þann leik.

„Já, algjörlega. Nú þurfum við bara að safna enn meiri orku. Við erum að fara í flug núna á eftir þannig það verður allt gert til að vera í toppstandi á sunnudaginn,“ sagði Lovísa að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×