Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson skrifar 9. mars 2026 08:22 Ég á marga vini og kunningja sem spyrja nú: af hverju ekki að leyfa þjóðinni að ráða? Er hún ekki best til þess fallin? Ef meirihlutinn segir já, eigum við þá ekki að kíkja í pakkann? Ef okkur lýst ekki á innihaldið þá bara segjum við nei. Lýðræðisveisla! Eins og sumir kalla það. Þetta er afstaða sem horfir framhjá sögu okkar. Og lýsir um leið vantrú á getu okkar sjálfra til að stjórna okkar eigin málum. Af hverju vil ég ekki kosningar? Af hverju vil ég ekki að þjóðin fái að ráða? Er ég hræddur við vilja þjóðarinnar? Já ég er hræddur við vilja hennar ef í ljós kemur að þjóðin vill fara í aðildarviðræður við ESB "til að kíkja í pakkann." Ég hef engan áhuga á því sem í pakkanum kann að leynast ef það felur í sér að við þurfum að afsala okkur hluta af sjálfstæði okkar og sjálfsákvörðunarrétti sem þjóðar. Jafnvel þótt í ljós myndi koma að á einhvern hátt væri hag okkar betur borgið um stundarsakir, verandi aðili að ESB, þá vitum við ekkert um það hvað felst í framtíðinni. Hvernig mun ESB þróast? Og við munum hafa afar lítið um það að segja. Ákvarðanir verða teknar af öðrum en okkur, um okkar hag, en ekki endilega okkur til hagsbóta. Það eru rétt rúm 80 ár síðan við fengum óskertan rétt til að ráða okkur og okkar málefnum sjálf án afskipta annarra. Það er rétt um einn mannsaldur. Það tók okkur mannsaldra að fá aftur óskert sjálfstæði eftir að við misstum það niður til erlends yfirvalds. Sögubækur okkar eru fullar af frásögnum um baráttu forfeðra okkar við að reyna að ná aftur fullveldinu og síðar sjálfstæðinu. Ljóðabækur forfeðra okkar litast af þessari baráttu. Ætlum við á einni mannsævi að glutra þessum árangri forfeðra okkar frá okkur? Þeir myndu snúa sér í gröfinni ef þeir gætu. Samstarf og samvinna er ekki það sama og samruni. Við getum átt samstarf og samvinnu með öðrum þjóðum. Og höfum gert með góðum árangri sem hefur skilað okkur mikilli hagsæld. En við þurfum ekki að renna saman við þær þannig að við verðum eitt með þeim á einhvern hátt. Eins og síamstvíburar þar sem hvorugur getur losað sig frá hinum meðan báðir lifa. Við eigum nýleg dæmi þar sem vinaþjóðir hafa efnt til ófriðar við okkur þótt við höfum verið í bandalögum með þeim. Nægir að nefna þorskastríðin og Icesave. Ekki gagnaðist okkur bandalagið þá. Hver er þá vörnin við ennþá nánari samtvinnun hagsmuna þegar sá sterkari ákveður? Man einhver eftir Grikklandi? Einn mannsaldur. Ég fordæmi þá skoðun sem felur í sér að vera reiðubúinn eða reiðubúin til að afsala sér því sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti sem forfeður okkar börðust fyrir að ná í margar aldir. Í þessari afstöðu felst ekki heimska eða þröngsýni heldur viðurkenning á því að Íslendingar eru fullvalda og sjálfstæðir og geta sem slíkir gert þá samninga við aðrar þjóðir sem þeim hentar. Og það má ekki gleyma því að undirrót ESB er sú að reyna að tryggja að stærstu þjóðir Evrópu stofnuðu til forvera ESB, Stál og kolabandalagsins, til að reyna að koma í veg fyrir að þær myndu tortíma hver annarri í þriðju heimsstyrjöldinni. Og margar þjóðir austan tjalds hafa leitað í faðm ESB til að finna sér skjól gegn ógninni úr austri. Það er allt annar veruleiki og forsaga en þjóðar sem bjó við ömurð í árhundruðir undir oki herraþjóðar. En sem hefur tekist á undraskömmum tíma að komast úr torfkofum í það að búa við hvað best kjör á heimsvísu. Og rís þá tímabilið eftir seinna stríð hæst. Sem hófst með Marshall aðstoð USA. En þær sem nú véla um framtíð þjóðarinnar eru þess meðvitaðar að yngra fólk landsins er ekki jafntengt sögunni og þeir sem eldri eru. Og hugsa þar með á annan hátt í því alþjóðlega umhverfi sem við nú lifum í. Þess vegna vilja þær kosningar með þá von í hjarta að nógu margir vilji "kíkja í pakkann." Og í kjölfarið afsala sér hluta af sjálfstæði þjóðarinnar. Viljum við í framtíðinni vera þjóðin sem verður minnst fyrir að hafa í aldir barist fyrir fullveldi sínu og í kjölfarið fullu sjálfstæði og náð að lokum, til þess eins að glata því aftur frá sér í hendur annarra ríkja aðeins "korteri" seinna. Vegna þess eins að stjórnmálamenn þess tíma treystu sér ekki sjálfir til að ráða fram úr málefnum þjóðar sinnar. Ég vil engar kosningar af framangreindum ástæðum. Ég fæddist sem þegn í fullvalda og sjálfstæðu ríki. Þannig vil ég deyja. Ég lít á það sem fæðingarrétt minn sem ekki verði tekinn af mér nema mögulega með hervaldi óvinaþjóðar. En ekki með kosningum samlanda minna. Ekkert frekar en að þeir geti kosið af mér lögræðið og skilið mig eftir með sjálfræðið. Og lögráðamann. Ég geri mér grein fyrir að ég fæ því ekki ráðið að stöðva þessar kosningar. En Inga Sæland getur það. Og hún ætti að hafa í huga að eftir þjóðaratkvæðagreiðslu munu völd hennar dragast saman. Kannski er það þess vegna sem þær stöllur eru að flýta atkvæðagreiðslunni? Ef Inga Sæland stöðvar þessa tilraun til afsals af hluta sjálfstæðis þjóðarinnar skal ég kjósa hana í næstu kosningum. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Evrópusambandið Flokkur fólksins Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun