Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Kjartan Kjartansson skrifar 9. mars 2026 11:01 Frá undirbúningsframkvæmdum fyrir Vaðölduver, fyrsta vindorkuver Landsvirkjunar. Það gekk áður undir vinnuheitinu Búrfellslundur þegar fyrirtækið gerði tilraunir með vindtúrbínur þar. Vísir/Vilhelm Framkvæmdir við Vaðölduver og Hvammsvirkjunar leiddu til þess að losun Landsvirkjunar á gróðurhúsalofttegundum jókst um tíu prósent á milli ára í fyrra. Losun vegna orkuvinnslu er enn vel undir viðmiðum um kolefnishlutleysi orkufyrirtækja og á meðal þeirra minnstu í orkugeiranum.
Landsvirkjun losaði um sextán prósentum meira af koltvísýringi vegna bruna á eldsneyti í tengslum við framkvæmdirnar í fyrra. Heildarlosun fyrirtækisins er sögð halda áfram að aukast á næstu árum vegna framkvæmdanna við virkjanirnar tvær, stækkunnar Sigöldustöðvar og uppsetningar á toppvélum á Þeistareykjum í loftslagsbókhaldi ríkisorkufyrirtækisins fyrir árið 2025. Losun vegna orkuvinnslunnar sjálfrar dróst saman á milli ára. Ástæðan var fyrst og fremst minni framleiðsla jarðvarmastöðva í tengslum við rekstrarerfiðleika kísilverksmiðju PCC á Bakka sem leiddi til átján prósent samdráttar í losun jarðvarmastöðva. Gróðurhúsalofttegundin koltvísýringur er meðal annars í gufu sem jarðvarmavirkjanir nýta. Miðlunarlón Landsvirkjunar losuðu sextán prósentum meira í fyrra en árið 2024. Aukningin er rakin til veðurfars og íslausra daga. Rotnandi gróður í lónunum myndar gróðurhúsalofttegundina metan sem losnar út í andrúmsloftið í gegnum yfirborð lónanna. Ís heldur aftur af þeirri losun yfir vetrarmánuðina auk þess sem kuldi hægir á rotnuninni. Losun Landsvirkjunar vegna orkuvinnslu á orkueiningu nam 3,1 grömmum af koltvísýringsígildum á hverja kílóvattstund í fyrra. Þegar tekið er tillit til heildarlosunar af starfseminni nam losunin 5,8 grömmum. Það er enn töluvert undir viðmiði um 9,1 gramm sem notast er við um kolefnishlutleysi orkufyrirtækja. Þá er gert ráð fyrir að fyrirtækin kaupi kolefniseiningar fyrir þeirri losun sem hlýst af framleiðslunni. Hætta að kaupa olíu árið 2030 Framkvæmdir Landsvirkjunnar verða loftslagsvænni í framtíðinni ef áform fyrirtækisins um að hætta að kaupa jarðefnaeldsneyti árið 2030 ganga eftir. Í bókhaldinu segir að fyrirtækið vinni markvisst að orkuskiptum í bíla- og tækjaflota þess. Í lok síðasta árs hafi 97 prósent fólksbílaflota þess gengið fyrir hreinni orku. Þar segir einnig að Mývatnssvæðið hafi orðið fyrsta jarðefnaeldsneytislausa starfssvæði Landsvirkjunar í fyrra.
Landsvirkjun Loftslagsmál Orkumál Jarðefnaeldsneyti Orkuskipti Deilur um Hvammsvirkjun Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira