Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 06:47 Darron Lee þegar hann var leikmaður Kansas City Chiefs í NFL-deildinni en hann vann titilinn með félaginu. Getty/Quinn Harris Samskipti við gervigreindarforritið ChatGPT eru sönnunargagn í morðréttarhöldum yfir fyrrverandi NFL- og Ohio State-stjörnuleikmanninum Darron Lee.
Saksóknarar lögðu fram hryllileg sönnunargögn til stuðnings ákæru um morð af yfirlögðu ráði á hendur varnarmanninum í forréttarhaldi á mánudag í Chattanooga í Tennessee-fylki. Darron Lee, sem var valinn í fyrstu umferð NFL-nýliðavalsins af New York Jets, leitaði ráða hjá ChatGPT-gervigreindarforritinu um hvernig hann gæti komist upp með morðið á kærustu sinni, sem hann er sagður hafa barið og stungið til bana í síðasta mánuði, að sögn saksóknara. Fannst á blóðugu heimili þeirra Kærasta hans, Gabriella Carvalho Perpétuo, fannst látin af lögreglu á gólfinu á blóðugu heimili þeirra í Tennessee. 🚨NEW: Former NFL linebacker Darron Lee allegedly asked ChatGPT how to cover up a murder after killing his girlfriend.Investigators say Lee searched for ways to clean blood, hide evidence, and stage an accident.One message reportedly read: "She stabbed herself… she isn't… pic.twitter.com/8mXqmdSNgw— KanekoaTheGreat (@KanekoaTheGreat) March 10, 2026 Það sem kom mest á óvart voru samskipti Lee og ChatGPT um hvernig ætti að búa til fjarvistarsönnun vegna áverka Perpétuo. Sjónvarpsstöðin WCTV í Chattanooga greindi frá því að Lee hefði sent spjallþjarkinum örvæntingarfull skilaboð skömmu áður en Perpétuo fannst látin á gólfi heimilis sem var þakið blóði og fullt af áfengisflöskum. Ég veit ekki hvað ég á að gera núna „Ég veit ekki hvað ég á að gera núna. Unnusta mín tók eitt af sínum brjálæðisköstum aftur og nú er hún illa farin. Ég var að vakna og hún er með tvö bólgin augu (ég gerði ekkert, hún gerði þetta sjálf). Hún stakk sig eða skar sig í augað. Ég veit það ekki en hún er ekki að vakna eða svara mér, hvað á ég að gera?“ spurði Lee ChatGPT samkvæmt upplýsingum saksóknara. Átti að hafa dottið í sturtunni Lee er sagður hafa sagt lögreglumönnum að Perpétuo þjáðist af drómasýki og hefði dottið í sturtunni. Samkvæmt vitnisburði rannsóknarlögreglumannsins Brian Lockhart bentu sönnunargögn um allt heimilið hins vegar til þess að áverkarnir væru augljóslega ekki af völdum sjálfsáverka eða slyss. „Það var blóð upp stigann, á handriðinu var blóð, á veggjunum var blóð, á gólfinu í stofunni var blóð,“ sagði Lockhart og bætti við: „Það var blóð í nánast öllum herbergjum nema einu.“ View this post on Instagram A post shared by New York Post (@nypost)
NFL Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Formúla 1 Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Mun Conte taka við Manchester United? Sport Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira