Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 06:47 Dak Prescott og Sarah Jane Ramos sjást sér saman á verðlaunahátíð NFL-deildarinnar í byrjun febrúar. Getty/Jeff Kravitz Launahæsti leikmaður NFL-deildarinnar hefur verið mikið í fréttum síðustu daga en þó ekki vegna afreka sinna innan vallar heldur er það einkalífið sem er að koma honum í fréttirnar.
Dak Prescott gerði þrjátíu milljarða samning við Dallas Cowboys í nóvember 2024 en hann fær 240 milljónir Bandaríkjadala fyrir fjögurra ára samning við verðmætasta íþróttafélag heims. Þetta átti líka að vera frábært ár fyrir kappann því Prescott og unnusta hans, Sarah Jane Ramos, ætluðu að gifta sig á Ítalíu í vor. Óvænt sambandsslit Dak og Sarah slitu hins vegar trúlofun sinni í síðustu viku eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí í Bahamaeyjum. Þessi óvæntu sambandsslit áttu sér stað aðeins mánuði fyrir fyrirhugað brúðkaup þeirra á Ítalíu. Dak Prescott's alleged 'infidelity' prompted fiancée Sarah Jane Ramos to call off wedding https://t.co/EQlNxZWZS0 pic.twitter.com/C6DP8WSfQ7— New York Post (@nypost) March 10, 2026 Þrátt fyrir að TMZ hafi greint frá því að samband leikstjórnanda Dallas Cowboys og móður tveggja barna hans hafi verið stormasamt á bak við tjöldin í marga mánuði voru samt miklar vangaveltur um bæði tímasetningu og ástæðu sambandsslitanna. Snérist ekki um kaupmála Fyrst bárust fréttir af því að hún hefði ekki viljað skrifa undir kaupmála en fljótlega kom í ljós að ástæður rifrildis þeirra voru af allt öðrum toga. Nýjustu fréttir hafa nefnilega leitt í ljós að það var Ramos sem sleit trúlofuninni eftir að hún sakaði Prescott um langvarandi framhjáhald. Heartbreaking: Sarah Jane Ramos allegedly called off her wedding to Dak Prescott due to “ongoing infidelity" issues.Ramos believes Dak was communicating with other women during their relationship and only wanted to marry because of their two young children.Jane also accuses… pic.twitter.com/YyOBQBn3sX— Dov Kleiman (@NFL_DovKleiman) March 10, 2026 Leikstjórnandi Cowboys á að hafa átt sér langa sögu um samskipti við aðrar konur á meðan á tæplega þriggja ára sambandi þeirra stóð. Ramos og Prescott eiga saman tvær dætur, Margaret, tveggja ára, og Auroru, tíu mánaða. Sendi óviðeigandi skilaboð Eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí þeirra voru þau áfram á Bahamaeyjum eftir að vinir þeirra fóru. Þá komst Ramos að því að leikstjórnandi Cowboys var að nota felureikning á samfélagsmiðlum til að senda óviðeigandi skilaboð til margra kvenna og fyrrverandi bólfélaga. Eftir að hafa loksins gengið á Prescott og heimtað að heyra sannleikann tók Ramos að sögn ákvörðun um að slíta trúlofuninni. Parið sendi sameiginlegan tölvupóst til hundraða brúðkaupsgesta þar sem fréttirnar voru tilkynntar. Prescott og Ramos gerðu samband sitt opinbert árið 2023 og Cowboys-stjarnan bað hennar í október 2024. Hann bað hennar með tíu karata smaragðsskornum trúlofunarhring frá Jason of Beverly Hills. View this post on Instagram A post shared by New York Post (@nypost)
NFL Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Fleiri fréttir Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Margfaldir meistarar fóru í hlutverk kylfusveina fyrir Íslandsmótið Lukaku lætur ekki sjá sig Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Sjá meira