Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 14:11 Guðrún Haraldsdóttir og Jón Ingi Gunnarsson, foreldrar Heklu Lindar, kröfðu ríkið um bætur vegna dauða dóttur þeirra. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af kröfunni í vikunni. Vísir/Vilhelm Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu aðstandenda ungrar konu sem lést þegar tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni þar sem hún var í geðrofi árið 2019. Héraðsdómur taldi lögreglumennina ekki hafa getað séð fyrir afleiðingar afskipta sinna af henni.
Hekla Lind Jónsdóttir var 25 ára gömul þegar hún lést eftir að tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni og yfirbuguðu þegar hún var í geðrofsástandi eftir neyslu fíkniefna 9. apríl árið 2019. Foreldrar Heklu Lindar og bróðir töldu íslenska ríkið bótaskylt vegna þess að hún lést eftir að lögreglumennirnir handtóku hana. Lögreglumennirnir hefðu haldið henni handjárnaðri liggjandi á jörðinni með því að þrýsta hnjám sínum á herðablaðasvæði hennar. Þá hefðu þeir barið hana með lögreglukylfum. Á meðan á átökunum stóð hafi Hekla Lind farið í hjartastopp sem leiddi til þess að hún lést. Hún var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi nokkrum klukkutímum síðar eftir misheppnaðar endurlífgunaraðgerðir lögreglumannanna og starfsmanna bráðamóttöku. Réttarmeinafræðingur sem krufði lík Heklu Lindar taldi að hún hefði verið með svonefnt óráðsástandsheilkenni áður en hún lést. Það hefði átt töluverðan þátt í dauða hennar að henni var haldið í þvingaðri legu með þrýsting á brjóstkassa hennar sem hefði getað hamlað getu hennar til að anda. Í Kompásþætti á Vísi árið 2020 kom fram að annar lögreglumannanna hefði sagt að Hekla Lind hefði dáið í „miðjum slagsmálum“. „Þetta er sturlað, hún dó,“ sagði í fjarskiptagögnum lögreglu. Lögreglumennirnir tveir höfðu stöðu sakbornings í rannsókn á dauða Heklu Lindar á tímabili. Ríkissaksóknari lét málið niður falla þar sem ekki var talið líklegt að lögreglumennirnir yrðu sakfelldir. Þeir voru taldir hafa beitt viðurkenndum aðferðum við handtökuna. Fyrir dómi byggði ríkið meðal annars á því að Hekla Lind hefði sjálf komið sér í það ástand sem hún var í og að hún hafi sýnt mikla mótspyrnu þegar lögreglumennirnir höfðu afskipti af henni. Nauðsynlegt hefði verið að beita hana valdi og ekki lægi fyrir að valdbeitingin hefði leitt til andláts hennar með afgerandi hætti. Höfðu afskipti af henni rúmri viku fyrr Héraðsdómur Reykjavíkur taldi í dómi sem féll á þriðjudag að lögreglumennirnir tveir hefðu ekki mátt gera sér grein fyrir því að Hekla Lind væri í svo viðkvæmu ástandi að afskipti þeirra af henni leiddi til þess að hún létist. Átta dögum áður en Hekla Lind lést hefðu sömu tveir lögreglumenn haft afskipti af henni þegar hún var einnig í geðrofi í tengslum við fíkniefnaneyslu. Sjúkraliðar hefðu þá neitað að taka hana svo æsta inn í sjúkrabíl og því hefðu lögreglumenn flutt hana á sjúkrahús. Í sjúkraskrá hennar hefði því verið haldið fram að þrjá lögreglumenn hefði þurft til þess að handtaka hana. Hún hefði svo verið fjötruð niður við komu á sjúkrahús vegna æsingarástands hennar. Þá vísaði dómstóllinn til þess að það væri afar sjaldgæft að fólk létist skyndilega í tökum lögreglu. Andlát Heklu Lindar hefði því ekki verið fyrirsjáanleg afleiðing af afskiptunum. Sérfróður meðdómsmaður taldi ekki að lýsingar foreldra Heklu Lindar í stefnu um ofsafengnar barsmíðar lögreglumannanna með kylfu ættu sér stoð í gögnum málsins. Krufningin benti ekki til að óhóflegu ofbeldi hefði verið beitt við handtökuna. Því sýknaði dómurinn ríkið af miskabótakröfu foreldra hennar. Þeir fengu gjafsókn í málinu og greiðir ríkissjóður sjö milljónir króna fyrir.
Dómsmál Fíkn Geðheilbrigði Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira