Moyes varði Arteta: Efast frekar um þá sem gagnrýna Arsenal Sindri Sverrisson skrifar 13. mars 2026 14:30 David Moyes og Mikel Arteta mætast á morgun og spurning hvort þá fari eins vel á með þeim eins og þegar þessi mynd var tekin. Getty/Stuart MacFarlane David Moyes, stjóri Everton, sparaði ekki hrósið í garð kollega síns hjá Arsenal, Mikels Arteta, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Arsenal er með sjö stiga forskot á Manchester City, sem reyndar á leik til góða, fyrir leiki helgarinnar en þarf að hafa varann á gegn lærisveinum Moyes sem eru í 8. sæti og hafa unnið tvo síðustu leiki. Íslandsvinurinn Moyes var á blaðamannafundi í dag spurður út í gagnrýni á Arsenal í vetur, varðandi til að mynda það að liðið treysti of mikið á föst leikatriði og að það sé sett í neikvætt samhengi. Ekki stóð á svörum eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: Moyes á fundi fyrir leik við Arsenal „Ég ætlaði einmitt að spyrja, hvaða gagnrýni? Þeir hjá Arsenal hafa staðið sig frábærlega. Mikel [Arteta] hefur staðið sig frábærlega. Ég veit að þeir hafa lent í öðru sæti á eftir Manchester City – en það er engin skömm að því, miðað við hversu góðir Manchester City hafa verið síðasta áratuginn,“ sagði Moyes og hélt áfram: „Hann hefur unnið frábært, frábært starf hjá Arsenal. Hann er með frábært lið og ég held að þeir hafi aldrei átt betri möguleika á að vinna deildina en í ár. Þeir eru í harðri baráttu í Meistaradeildinni, þeir eiga deildabikarinn [úrslitaleik], þeir eru í enska bikarnum. Þannig að ég myndi svo sannarlega efast um þá sem hafa verið að gagnrýna.“
Enski boltinn Everton FC Arsenal FC Mest lesið Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Körfubolti Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Enski boltinn Rory reiður: „Grjóthaltu kjafti“ Golf Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Enski boltinn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Enski boltinn Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Mourinho tekur við Real Madrid en fyrirliðinn kveður Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina Heskey yngri tryggði City titil gegn United Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Benóný Breki fer á Wembley City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Sjá meira