Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 17:56 Brendan Carr, yfirmaður Fjarskiptastofnunnar Bandaríkjanna, eða FCC, ræðir við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Getty Stjórnarformaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna hótar að svipta fjölmiðla leyfinu eftir að bandarískt dagblað birti frétt um að Íranir hefðu gert árás á bandarískar herflugvélar í Sádí-Arabíu. Trump-liðar hafa lýst mikilli óánægju vegna umfjöllunar fjölmiðla um stríðið í Íran.
Brendan Carr, stjórnarformaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), hótaði því í samfélagsmiðlafærslu í gær að fjölmiðlar yrðu sviptir útvarpsleyfi vegna umfjöllunar þeirra um stríðið í Íran. Carr sakaði fjölmiðla um „blekkingar og rangfærslur í fréttum“ og brýndi fyrir þeim að „leiðrétta stefnu sína áður en þeir þurfa að endurnýja leyfið sitt.“ „Fjölmiðlar verða að vinna í þágu almennings og þeir munu missa leyfin ef þeir gera það ekki,“ bætti hann við í færslu á X þar sem hann endurbirti færslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann rengdi umfjöllun Wall Street Journal sem hafði eftir bandarískum ráðamönnum að fimm áfyllingarþotur hefðu orðið fyrir íranskri loftárás í Sádí-Arabíu í vikunni. Forsetinn sagði færsluna „vísvitandi villandi“ en tók vissulega fram að lítið tjón hefði orðið á flugvélunum. Ríkisstjórnarliðar eru ósáttir með fréttaflutning af stríðinu í Íran. Á mynd má sjá Donald Trump Bandaríkjaforseta og Pete Hegseth stríðsmálaráðherra, áður varnarmálaráðherra.AP/Mark Schiefelbein Trump hafði sakað fjölmiðilinn um að vilja að Bandaríkin myndu tapa stríðinu við Íran, sem hófst fyrir rétt rúmum tveimur vikum með samþættri árás Ísraels og Bandaríkjamanna á Íran. Dow Jones & Company, sem rekur fjölmiðilinn, hefur ekki tjáð sig um málið. Að sama skapi kvartaði Pete Hegseth stríðsráðherrann undan umfjöllun sjónvarpsstöðvarinnar CNN um stríðið er hann talaði á blaðamannafundi á föstudag og sagðist hlakka til þess þegar auðkýfingurinn David Ellison tæki við stjórnartaumunum á miðlinum. Ellison er góður vinur Trumps og eigandi Paramount Skydance mun Warner Bros. Discovery og CNN með því, að gefnu samþykki frá Trump-stjórninni. Í heimi fjölmiðla er Ellison best þekktur fyrir að hafa hrist upp í CBS News og ráðið þar til sín fyrir íhaldssamari fjölmiðlamenn. Frá því að Carr tók við stjórnarformennsku í FCC við upphaf annars kjörtímabils Trumps 2025 hefur hann ítrekað gefið í skyn að hann kynni að svipta sjónvarps- og útvarpsstöðvar leyfinu en sjónvarpsstöðvar þurfa leyfi til hljóð- og myndmiðlunar frá stofnuninni. Aftur á móti hefur New York Times eftir sérfræðingum í fjölmiðlalöggjöf um að löggjöfin í kringum leyfisveitingar til fjölmiðla sé til þess hönnuð að gera það erfitt að svipta fjölmiðla leyfi. Lögin komi einnig í veg fyrir það að ríkisstjórnir geti ritskoðað miðla.
Íran Donald Trump Fjölmiðlar Bandaríkin Ísrael Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira