Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. mars 2026 06:52 Sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad. AP/Hadi Mizban Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata.
AFP greindi einnig frá því í morgun að Bandaríkjamenn eða Ísraelar hefðu gert árás á hús í Baghdad, þar sem fjórir létust. Tveir þeirra eru sagðir hafa verið íranskir ráðgjafar hópa sem hafa notið stuðnings stjórnvalda í Tehran. Varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmana sagði í morgun að loftvarnir ríkisins hefðu skotið niður eldflauga og dróna frá Íran í morgun. Lofthelgi landsins var lokað um tíma en hefur nú verið opnuð á ný. Greint var frá því í gær að Ísraelar hefðu farið inn í suðurhluta Líbanon í „afmarkaðar“ aðgerðir gegn Hezbollah og gefið út viðvörun til þúsunda íbúa um að snúa ekki heim að svo stöddu. Evrópuleiðtogar lýstu alvarlegum áhyggjum vegna málsins og sögðu innrás geta leitt til hörmungarástands á svæðinu. Fjöldi fólks er á vergangi í Beirút og víðar vegna árása Ísraelshers og aðgerða gegn Hezbollah.AP/Hassan Ammar Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa brugðist fálega við hótunum Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem hefur sagt framtíð Nató í hættu komi bandamenn ekki til aðstoðar við opnun Hormuz-sunds. Leiðtogar Evrópu hafa hins vegar ítrekað að Bandaríkjamenn hafi ráðist gegn Íran án þess að ráðfæra sig við aðra og ekki sé um að ræða aðgerðir af hálfu Nató. Axios greindi frá því í gær að samtal væri hafið á bakvið tjöldinn milli Steve Witkoff, erindreka Trump, og Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, en síðarnefndi sagði ekkert hæft í þessu. Þá vændi hann Bandaríkjamenn um að hafa skáldað orðróminn til í þeim tilgangi að hafa áhrif á almenningsálitið og olíuverð.
Íran Írak Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Líbanon Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira