Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 17:30 Kasper Högh hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm leikjum í Meistaradeildinni og átt stóran þátt í því að gulklæddir eru komnir mjög nálægt átta liða úrslitum í virtustu Evrópukeppninni. Getty/Chris Brunskill Kasper Högh, framherji Bodö/Glimt og fyrrum Íslandsmeistari með Valsmönnum, gæti leikið sinn fyrsta landsleik fyrir Danmörku í komandi umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Þetta varð ljóst eftir að Brian Riemer landsliðsþjálfari kynnti hóp sinn í dag. Danmörk mætir Norður-Makedóníu í umspili um HM-sæti þann 26. mars. Ef þeir sigra þann leik bíður þeirra úrslitaleikur um HM-sæti gegn annaðhvort Tékklandi eða Írlandi. Högh hefur ekki verið í A-landsliðshópi Dana áður. Hann á hins vegar að baki leiki með yngri landsliðum. View this post on Instagram A post shared by DR Sporten (@drsporten) Eftir áramót hefur Högh slegið í gegn með Bodö/Glimt í Meistaradeildinni. Hann hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm leikjum í Meistaradeildinni og átt stóran þátt í því að gulklæddir er kominn með annan fótinn í átta liða úrslitin í virtustu Evrópukeppninni. Sýnt það gegn stórliðunum „Áður fyrr var hægt að setja spurningamerki við það að hann spili uppi í Noregi og skori mörk gegn liðum úr norsku deildinni. Hversu góður er hann í raun og veru? En þeirri umræðu getum við lokið núna. Það sem hann hefur sýnt gegn stórliðum eins og Manchester City, Atlético Madrid og Inter er á svo háu stigi að það verður að taka það alvarlega, “ sagði landsliðsþjálfarinn Riemer við Viaplay fyrir leikina tvo gegn Sporting. Hann upplýsti einnig að hann hefði þegar í haust tilkynnt Högh að hann væri á mörkum þess að komast í landsliðið. Högh varð Íslandsmeistari með Valsmönnum haustið 2020 en tókst þá ekki að slá Patrick Pedersen út úr byrjunarliðinu og tókst heldur ekki að skora í fimm leikjum. Valsmenn urðu Íslandsmeistarar það haust þar sem Pedersen skoraði fimmtán mörk í sautján leikjum. View this post on Instagram A post shared by Herrelandsholdet (@herrelandsholdet)
Norski boltinn HM 2026 í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira