Um Fjarðarheiðargöng og samgönguáætlun Þórhallur Borgarson skrifar 18. mars 2026 12:17 Ekki er hægt að segja að það hafi komið á óvart að í fréttum sýnar í gærkvöldi hafi Kristján Már Unnarsson verið með umfjöllun um drög að samgönguáætlun. Aðeins sólahring áður en Innviðaráðherra á að mæta fyrir samgöngunefnd Alþingis. Hann hefur verið ötull í baráttu sinni ásamt nokkrum öðrum í andstöðu við samgöngubætur á austurlandi. Það hefur verið athygglisvert að sjá hvern sérfræðinginn á fætur öðrum koma og tala fyrir mikilvægi góðra samgangna og tenginga milli byggðakjarna bara ekki þessara byggðakjarna. Þá skiptir ekki máli hvort er verið að tala um tengingu Seyðisfjörður – Egilsstaðir eða Egilsstaðir – Djúpivogur. Svonefnd sáttaleið sem hann talar um í fréttinni að Fjarðabyggð hafi lagt framm er einungis til þess fallin að drepa málum á dreif og tefja samgöngubætur á austurladi enn frekar. En það kemur nú ekki á óvart. Það er engin ný bóla að nágranar okkar í Fjarðabyggð geti ekki staðið við þær áætlanir sem búið er að samþykkja og tala fyrir lengi heldur leggi sig fram um að hindra þær. Það er grátbroslegt að lesa sumt af þeim rökum sem komið hafa framm til að réttlæta það að taka fjarðarheiðargöng af samgönguáætlun. Við getum nefnt nokkur dæmi. Það er ekki verjandi að leggja í svona mikkla fjárfestingu fyrir stað þar sem ekki búa nema tæplega 600 manns. ( Þó svo að vegurinn til Evrópu liggi um sömu göng ) Sömu mönnum finnst ekkert athugavert að leggja í svipaða fjárfestingu til að rjúfa vetrareinangrun 9 manna. Gangnasæðið undir Fjarðarheiði er ómögulegt. Vatnið í Heiðarvatni og virkjunarlónið mun allt leka niður í göngin og valda ómældum kostnaði og eyðileggja Fjarðaselsvirkjun. Þeir sem þetta segja vita sennilega ekki af því að það eru gong undir Hvalfjörðinn og eru búin að vera síðan 1996. Rétt er að benda á að Hvalfjörðurinn er á eldvirku jarðskjálftasvæði og í drögum að nýrri samgönguáætlun eru önnur gong undir Hvalfjörðinn á dagskrá. Það er ljóst að það skiptir í raun ekki máli hvaða rökum er beitt. Ákvörðunin er og verður alltaf pólitísk. Fyrir okkur íbúa í Múlaþingi er ekkert annað að gera en að bíða af okkur þessa ríkistjórn og reyna að lágmarka það tjón sem hún, nágrannar okkar aðrir ná að valda á innviðauppbyggingu í Múlaþingi. Í könnun Maskínu sem var birt 17.3 kemur framm að 27% austfirðinga eru hlynt breitingum á samgönguáætlu en 55% andvíg. Þetta kemur ekki á óvart því flestir gera sér grein fyrir því að því betri samgöngur innan fjórðungsins því sterkari verður hann sem heild. Því miður held ég að það sé búið að koma því þannig fyrir að lítið sem ekkert gerist hér á næstu 10 til 20 árum. Í gangnamálum finnst mér ekki ólíklegt að næstu gong hér verði undir Lónsheiði í tengslum við uppbyggingu vegar frá Höfn í Hornafirði á Djúpavog. Sú uppbygging mun styrkja ferðaþjónustu í syðsta hluta Múlaþings og styrkja tengslin við Sveitarfélagið Hornafjörð. Höfundur er varaformaður Umhverfis og Framkvæmdaráðs Múlaþings og skipar 8. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jarðgöng á Íslandi Múlaþing Fjarðabyggð Vegagerð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar